Fri Kvam losar salt í Grindavík

IMO 9211078. Fri Kvam við bryggju í Grindavík. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Jón Steinar tók þessa mynd í gær af flutningaskipinu Fri Kvam sem kom til Grindavíkir með saltfarm fyrir Saltkaup. Skipið, sem var smíðað árið 2000 hjá Volharding Shipyard Waterhuizen í Hollandi, er skráð á Kýpur með heimahöfn í Limasol. Það er 89,7 metrar … Halda áfram að lesa Fri Kvam losar salt í Grindavík →

Þorbjörg ÞH 25

2588. Þorbjörg ÞH 25 ex Þorbjörg RE 6. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Grásleppubáturinn Þorbjörg ÞH 25 kemur hér að landi á Raufarhöfn í gær en hún er í eigu Æðarsker ehf. og er með heimahöfn á Kópaskeri. Þorbjörg ÞH 25 hét upphaflega Björn Kristjónsson SH 165 frá Ólafsvík. Báturinn er af gerðinni Sómi 865 og … Halda áfram að lesa Þorbjörg ÞH 25 →

Björg EA 7 að veiðum í morgun

2894. Björg EA 7. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2020. Hólmgeir Austfjörð skipverji á Ottó N Þorlákssyni VE 5 tók þessar myndir um kl. 7 í morgun og sýna þær Samherjatogarann Björgu EA 7 að veiðum sunnan við Surtsey. Björg EA 7 var síðust í röð fjögurra syst­ur­skip­a sem smíðuð voru fyrir íslendinga hjá Cem­re-skipa­smíðastöðinni í Tyrklandi … Halda áfram að lesa Björg EA 7 að veiðum í morgun →

Björn Hólmsteinsson ÞH 164

2641. Björn Hólmsteinsson ÞH 164 ex Sæborg SU 48. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Björn Hólmsteinsson ÞH 164 sést hér á þessum myndum koma til hafnar á Raufarhöfn í dag en hann er á grásleppunetum þessa dagana. Það er Hólmsteinn Helgason ehf. sem gerir bátinn út en fyrirtækið keypti bátinn til Raufarhafnar í ársbyrjun 2014 en … Halda áfram að lesa Björn Hólmsteinsson ÞH 164 →

Grásleppan er lífið fyrir neðan bakkann þessa dagana

Grásleppubátarnir Aron ÞH 105 og Aþena ÞH 505. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Grásleppan er lífið fyrir neðan bakkann á Húsavík þessa dagana og ekki amalegt að kíkja á bryggjuna í vorblíðunni líkt og í dag. Grásleppubátarnir Aron ÞH 105 og Aþena ÞH 505 komu að landi á sama tíma en Guðmundur A. Hólmgeirsson gerir Aron … Halda áfram að lesa Grásleppan er lífið fyrir neðan bakkann þessa dagana →

Skarðsvík SH 205 við bryggju á Siglufirði

TFXY. Skarðsvík SH 205. Ljósmynd Hannes Baldvinsson. Hér liggur Skarðsvík SH 205 við bryggju á Siglufirði, vel hlaðin af síld. Myndina tók Hannes Baldvinsson. Skarðsvík þessi átti sér ekki langa sögu, var smíðuð 1960 í Danmörku fyrir Sigurð Kristjónsson ofl. en eigandi frá 8. maí 1961 var Skarðsvík h/f á Rifi á Snæfellsnesi. Skarðsvík var 86 brl. að … Halda áfram að lesa Skarðsvík SH 205 við bryggju á Siglufirði →

Anna EA 305 við bryggju á Akureyri.

2870. Anna EA 305 ex Carimsa Star. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Línu- og netaskipið Anna EA 305 liggur hér við bryggju og bíður þess sem verða vill, hvað svo sem það verður. Myndin var tekin í gær. Anna var smíðuð í Noregi árið 2001 og hét áður Carisma Star. Hún er 52. metrar að lengd, 11 … Halda áfram að lesa Anna EA 305 við bryggju á Akureyri. →

Wilson Cork kom með áburð

IMO 9178460. Wilson Cork. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Flutningaskipið Wilson Cork kom til Húsavíkur í kvöld og lagðist að Norðurgarðinum þar sem skipað verður upp áburði. Wilson Cork siglir undir fána Barbadoseyja og er með heimahöfn í Bridgetown. Skipið, sem er 99,9 metrar að lengd og 12,8 metra breitt, mælist 2,999 brúttótonn að stærð. Það … Halda áfram að lesa Wilson Cork kom með áburð →