Una í Garði GK 100

1207. Una í Garði GK 100 ex Geiri Péturs ÞH 344. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Una í Garði GK 100 hét upphaflega Sigurbergur GK 212 frá Hafnarfirði sem smíðaður var í Slippstöðinni á Akureyri árið 1971.

Árið 1980 fékk báturinn, sem var 138 brl. að stærð og hafði verið yfirbyggður, nafnið Geiri Péturs ÞH 344 með heimahöfn á Húsavík og þar var hann næstu sjö árin.

Þá var báturinn seldur Njáli hf. í Garðinum sem nefndi bátinn Unu í Garði GK 100.

Una í Garði GK 100 fórst norður af Skagafirði aðfaranótt þriðjudagsins 17. júlí árið 2001 og með henni tveir menn.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd