
Siglunes HF 26 er hér í Sandgerðishöfn um árið og liggur utan á Unu í Garði GK 100 sem liggur utan á Geir Goða GK 220.
Þá má sjá í Freyju GK 364 en Freyja, Una í Garði og Siglunes voru allir gerðir út frá Húsavík á sínum tíma.
Freyja hét þá Skálaberg ÞH 244, Una í Garði hét Geiri Péturs ÞH 344 og Siglunesið var ÞH 60.
Siglunes hét upphaflega Siglunes SH 22 frá Grundarfirði. Smíðaður hjá Þorgeir og Ellert h/f árið 1970 fyrir Hjálmar Gunnarsson útgerðarmann.
Siglunesið var selt Meleyri h/f á Hvammstanga 1982 og varð við það HU 222. Árið 1987 var báturinn seldur til Húsavíkur og varð ÞH 60.
Eftir að báturinn var seldur frá Húsavík vorið 1990 hét hann áfram Siglunes, fyrst SH 22 og síðan HF 26. Því næst Erlingur GK 212, Erlingur GK 214, Sigurbjörg Þorsteins BA 65, Strákur ÍS 26 og loksins Strákur SK 126 sem varð hans síðasta nafn.
Strákur SK 126 sigldi sína síðustu ferð þegar hann fór til Esbjerg í Danmörku til niðurrifs. Hafði hann annan fyrrum húsvískan bát í slefi yfir hafið og lögðu þeir upp frá Krossanesi við Eyjafjörð sumarið 2008.
Þar var um að ræða Jón Steingrímsson RE 7 sem upphaflega hét Dagfari ÞH 40.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution