Sturla lét úr höfn í kvöld

2444. Sturla GK 12 ex Smáey VE 444. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2020. Sturla GK 12 hélt til veiða frá Grindavík í kvöld og tók Jón Steinar þessar myndir þá. Þorbjörn hf. keypti skipið frá Vestmannaeyjum fyrr á þessu árin Bergur-Huginn ehf. lét smíða það í Póllandi árið 2007. Upphaflega og lengst af hét það … Halda áfram að lesa Sturla lét úr höfn í kvöld

Sturla og Tómas Þorvaldsson mættust

2444. Sturla GK 12 og 2173. Tómas Þorvaldsson GK 10 Ljósmynd Jón Steinar 2020. Þorbjarnarskipipn Sturla GK 12 og Tómas Þorvaldsson GK 10 mættust fyrir utan Grindavík í kvöld og náði Jón Steinar þessari mynd af þeim. Sturla var á útleið en Tómas Þorvaldsson að koma til hafnar. Með því að smella á myndina er … Halda áfram að lesa Sturla og Tómas Þorvaldsson mættust

Fengur ÞH 207

2125. Fengur ÞH 207. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Fengur ÞH 207 frá Grenivík kemur hér að landi á Dalvík í gær en báturinn tók þátt í sjóstangveiðimóti sem haldið var þar. Fengur ÞH 207 var smíðaður árið 1988. Það var Stuðlaberg ehf. á Grenivík, sem bræðurnir Jón og Friðrik Kr. Þorsteinssynir stóðu að, fékk skel … Halda áfram að lesa Fengur ÞH 207

Gandí VE 171

2702. Gandí VE 171 ex Rex HF 24. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum keypti frystitogarann Rex HF 24 árið 2010 og gaf honum nafnið Gandí VE 171. Útgerðarfyrirtækið Sæblóm í Hafnarfirði keypti togarann frá Noregi árið 2005 en þar hét hann Havsbryn og átti heimahöfn í Álasundi. Hann fékk nafnið Rex HF 24 og … Halda áfram að lesa Gandí VE 171

Særún EA 251 kemur að landi á Dalvík

2711. Særún EA 251 ex Elli P SU 206. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Þessar myndir sem nú birtast sýna Særúnu EA 251 frá Árskógssandi koma að landi á Dalvík en báturinn tók þátt í sjóstangveiðimóti sem þar var haldið. Báturinn, sem er af gerðinni Siglufjarðar-Seigur, var smíðaður á Siglufirði árið 2007 og hét upphaflega Lúkas … Halda áfram að lesa Særún EA 251 kemur að landi á Dalvík

Hrafn Sveinbjarnarson GK 255

1972. Hrafn Sveinbjarnarson GK 255 ex Snæfel EA 740. Ljósmynd Elvar Jósefsson 2020. Elvar Jósefsson tók þessar myndir í gær þegar frystitogarinn Hrafn Sveinbjarnarson GK 255 kom til hafnar í Grindavík. Togarinn var smíðaður í Flekkefjord í Noregi árið 1988 fyrir Hríseyinga en seldur til Grindavíkur síðla árs 1989. Það var Þorbjörn hf. sem keypti … Halda áfram að lesa Hrafn Sveinbjarnarson GK 255