
Hólmgeir Austfjörð skipverji á Ottó N Þorlákssyni VE 5 tók þessar myndir um kl. 7 í morgun og sýna þær Samherjatogarann Björgu EA 7 að veiðum sunnan við Surtsey.
Björg EA 7 var síðust í röð fjögurra systurskipa sem smíðuð voru fyrir íslendinga hjá Cemre-skipasmíðastöðinni í Tyrklandi og afhent á árinu 2017.
Kaldbakur EA 1 kom fyrstur, síðan Björgúlfur EA 312 og því næst Drangey SK 2 og að lokum Björg EA 7 eins áður segir.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution