Harpa GK 111

1674. Harpa GK 111. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson.

Harpa GK 111 kemur hér til hafnar í Vestmannaejum um árið en hún var smíðuð hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar árið 1985.

Í Morgunblaðinu 14. mars 1985 sagði svo frá:

Nýr bátur kom til heimahafnar sinnar, Grindavíkur, sunnudaginn 3. marz. Það er Harpa GK 111.

Nýi báturinn er um 150 tonn, byggður í Vélsmiðju Seyðisfjarðar. Smíði bátsins hófst fyrir 14 mánuðum en sjósetning var 24. nóvember sl.

Bátinn teiknaði Stefán Jóhannsson tæknifræðingur, sem jafnframt er forstjóri Vélsmiðju Seyðisfjarðar.

Harpan er 18. báturinn, sem Stefán teiknar og smíðar.

Eigandi Hörpunnar er Gullvík hf., Grindavík. Aðaleigendur fyrirtækisins eru hjónin Ágústa Gísladóttir og Hafsteinn Sæmundsson. 

Skipstjóri nýja bátsins verður Ómar Einarsson, sem áður var skipstjóri á Mb. Skúm GK 22.

Hafsteinn lýsir bátnum þannig, að þetta skip sé fjölveiðiskip, sem geti stundað línu-, neta- og togveiði. Báturinn er yfirbyggður stafna á milli og með skutrennu. 

Fiskmóttaka er aftast í skipinu, en íbúðir allrar áhafnar frammí.

Aðalvél skipsins er 565 hestafla Caterpillar og tvær ljósavélar eru af sömu gerð. Skrúfa skipsins er mjög hæggeng og stór, snýst aðeins 215 snúninga á mín., sem gerir það mjög hagkvæmt togskip.

Harpa er vel búin tækjum og má sérstaklega nefna aflamæli, sem mælir stærð fisks í prósentum.

Helmingur lestar er útbúinn sem frystilest og einnig eru í bátnum frystitæki til að heilog lausfrysta fisk, til dæmis rækju og grálúðu. 

Vistarverur eru fyrir 11 menn í 5 klefum.

Harpa mun fara á togveiðar og verður afli að hluta lagður upp hjá Gullvík hf. eða eins og vinnslugeta fyrirtækisins leyfir.

Þannig var það nú en báturinn er 144 brl. /202 BT að stærð, lengd hans er 25,99 metrar og breiddin 7 metrar.

Harpa GK 111 var seld til Hornafjarðar árið 1991 þar sem hún fékk fékk nafnið Hrísey SF 48, og síðar Silfurnes SF 99.

Árið 1995 var báturinn seldur til Grundarfjarðar þar sem hann fékk nafnið Sóley SH 124 og þar var hann næstu tólf árin.

Að lokum, eða árið 2017, fékk báturinn nafnið Pálína Ágústsdóttir EA 85 með heimahöfn í Hrísey.

Báturinn var seldur til Spánar árið 2020.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd