Happasæll KE 94

89. Happasæll KE 94 ex Árni Geir KE 74. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Happasæll KE 94 lætur hér úr höfn í Keflavík en það var hans heimahöfn um árabil. Upphaflega hét báturinn Heimir SU 100 frá Stöðvarfirði, smíðaður í Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk As í Noregi 1963 fyrir Varðarútgerðina hf á Stöðvarfirði. Báturinn sem er 179 … Halda áfram að lesa Happasæll KE 94 →

Bergur VE 44

968. Bergur VE 44 ex Bergur II VE 144. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Bergur VE 44 kemur héð drekkhlaðinn til hafnar í Vestmannaeyjum um árið en hann hét upphaflega Krossanes SU 320. Krossanes var smíðað árið 1964 fyrir Hraðfrystihús Eskifjarðar hf. í Boizenburg í Austur-Þýskalandi. Krossanes var selt til Keflavíkur árið 1970 þar sem það fékk … Halda áfram að lesa Bergur VE 44 →

Bergur Vigfús GK 53

967. Bergur Vigfús GK 53 ex Keflvíkingur KE 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Bergur Vigfús GK 53 hét upphaflega Keflvíkingur KE 100 og var hann fyrstur í röð átján báta sem Þjóðverjar smíðuðu fyrir Íslendinga í Boizenburg á árunum 1964-1967.  Keflvíkingur KE 100 hét þessu nafni í rúmlega 30 ár en báturinn var lengdur og yfirbyggður árið … Halda áfram að lesa Bergur Vigfús GK 53 →

Árnes

994. Árnes ex Baldur. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Árnes sem hér sést á siglingu hét upphaflega Baldur og var smíðað fyr­ir út­gerð flóa­báts­ins Bald­urs í Stykkishólmi. Smíðin fór fram í Kópavogi og var Baldur afhentur 31. mars árið1966. Baldur var 180 brl. að stærð en eftir lengingu á Akureyri mældist hann 193 brl. að stærð. Baldur … Halda áfram að lesa Árnes →

Trausti í slipp á Akureyri

396. Trausti EA 98 ex Sigurður Pálsson ÓF 66. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2011. Hér gefur að líta Trausta EA 98 í slippnum á Akureyri og við kantinn liggur fyrrum Sólbakur EA 307. Þarna bar hann nafnið Sermilik II eftir að hafa verið seldur til Grænlands. Um Trausta hefur verið fjallað áður hér á síðunni og lesa … Halda áfram að lesa Trausti í slipp á Akureyri →

Páll Jónsson GK 7

2957. Páll Jónsson GK 7. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar Sæmundsson tók þessar myndir fyrir utan Grindavík í dag þega Páll Jónsson GK 7 kom úr veiðiferð. Svo segir Jón Steimar á fésbókarsíðu sinni, Báta og bryggjubrölt: Konungur línuveiðaranna Páll Jónsson kom í land um miðjan dag í dag með fullfermi. Hann er … Halda áfram að lesa Páll Jónsson GK 7 →