Steinunn SF 10 á landleið

2966. Steinunn SF 10. Ljósmynd Margeir Guðmundsson 2024. Hér gefur að líta Steinunni SF 10 á siglingu til Þorlákshafnar smekkfulla af fiski eins og Sigurður Davíðsson orðaði það en hann sendi síðunni myndina. Margeir Guðmundsson skipstjóri á Þinganesi SF 25 tók myndina. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri … Halda áfram að lesa Steinunn SF 10 á landleið →

Blíðfari GK 275

1979. Blíðfari GK 275 ex Faxafell GK 110. Ljósmynd Alfons Finnsson. Blíðfari GK 275 kemur hér að landi í Ólafsvík en þetta nafn bar báturinn árin 1993 til ársins 1996. Blíðfari hét upphaflega Faxafell GK 110 og var með heimahöfn í Vogum á Vatnsleysuströnd. Hann var smíðaður í Vélsmiðju Jónasar Þórðarsonar í Garðabær árið 1989.  … Halda áfram að lesa Blíðfari GK 275 →

Mímir RE 3

1694. Mímir RE 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1986. Mímir RE 3 kemur hér til hafnar í Reykjavík um árið báturinn var smíðaður árið 1985 hjá Mánavör á Skagaströnd. Mímir, sem var 15 brl. að stærð, var smíðaður fyrir Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið og notaður sem skólaskip. Mímir RE 3 fórst í Hornafjarðarósi 28. október árið 1991. Honum … Halda áfram að lesa Mímir RE 3 →

Brufjell við Bökugarðinn

IMO 9346665. Brufjell ex Damsterdijk. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Norska flutningaskipið Brufjell kom til Húsavíkur í gærkveldi og lagðist að Bökugarðinum þar sem skipað er upp hráefnisfarmi fyrir kísilver PCC á Bakka. Brufjell var smíðað í Goa á Indlandi árið 2007 og er 89,95 metra að lengd. Breidd þess er 14,4 metrar og það mælist … Halda áfram að lesa Brufjell við Bökugarðinn →

Drangavík ST 160

5913. Drangavík ST 160 ex Drangavík HF 122. Ljósmydn Hafþór Hreiðarsson 2018. Drangavík ST 160 hét upphaflega Bangsi RE 83 og var smíðaður hjá Bátasmiðjunni Mótun í Hafnarfirði árið 1978. Árið 1985 fékk báturinn, sem er rúmar 2 brl. að stærð, nafnið Drangavík HF 122. Báturinn hefur frá árinu 1990 heitið Drangavík ST 60 með … Halda áfram að lesa Drangavík ST 160 →

Halldór Jónsson SH 217

1846. Halldór Jónsson SH 217 ex Siggi Sveins ÍS 29. Ljósmynd Alfons Finnsson. Halldór Jónsson SH 217 er þekkt nafn í flota Ólafsvíkinga og þessi bátur bar það nafn í um tvö ár, 1992 til 1994. Uphaflega hét báturinn Siggi Sveins ÍS 29 og var smíðaður árið 1987 hjá Skipasmíðastöð Marsellíusar Bernharðssonar hf. Ísafirði.  Stakkholt … Halda áfram að lesa Halldór Jónsson SH 217 →