Vinur hefur hafið siglingar á Skjálfanda

3048. Vinur ex Øyglimt. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Hvalaskoðunarbáturinn Vinur sem Sjóferðir Arnars á Húsavík keypti frá Noregi fyrr á árinu hefur hafið siglingar á Skjálfanda. Vinur er rúmlega 20 metrar að lengd og tekur 48 farþega. Báturinn var úr smíðaður úr plasti árið 1980. Fyrirtækið hefur frá miðju sumri 2023 gert út hvalaskoðunarbátinn Moby … Halda áfram að lesa Vinur hefur hafið siglingar á Skjálfanda →

Seven Seas Grandeur á Húsavík

IMO 9877444. Seven Seas Grandeur. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Farþegaskipið Seven Seas Grandeur hafði viðdvöl á Húsavík í dag og lá við Bökugarðinn. Skipið var smíðað á Ítalíu árið 2023 og siglir undir fána Marshalleyja og heimahöfn þess er Majuro. Seven Seas Grandeur er 56,199 GT að stærð. Lengd skipsins er 224 metra og breidd … Halda áfram að lesa Seven Seas Grandeur á Húsavík →

Hansa Christiansoe er nýtt og glæsilegt skip

IMO 1031587.Hansa Christiansoe. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Flutningaskipið Hansa Christiansoe er á Húsavík í dag þar sem það losar saltfarm. Skipið er nýtt af nálinni, var afhent þýsku útgerðinni Leonhardt & Blumberg í aprílmánuði sl. frá skipasmíðastöðinni Jiangsu Dajin Heavy Industry Co Ltd í Kína. Hansa Christiansoe, sem siglir undir fána Portúgals með heimahöfn á … Halda áfram að lesa Hansa Christiansoe er nýtt og glæsilegt skip →

Ingólfur GK 125

824. Ingólfur GK 125 ex Bergþór KE 5. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Ingólfur GK 125, sem hér kemur að landi í Grindavík um árið, var smíðaður í Frederikssund í Danmörku árið 1931. Báturinn, sem er 22 brl. að stærð, hét upphaflega Huginn GK 341 og var smíðaður fyrir Útgerðarfélag Vatnsleysustrandar í Vogum. Hann bar nokkur nöfn í gegnum … Halda áfram að lesa Ingólfur GK 125 →