Sölvi Bjarnason BA 65

1556. Sölvi Bjarnason BA 65. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson.

Sölvi Bjarnason BA 65 kemur hér til hafnar í Vestmannaeyjum um árið en hann var smíðaður á Akranesi fyrir Tálkna hf. á Tálknafirði, afhentur í marsmánuði 1980.

Togarinn sem var 405 brl. að stærð, fékk síðar heimahöfn á Bíldurdal, gerður út af Útgerðarfélagi Bílddælinga hf..

Árið 1993 var hann seldur Hraðfrystihúsi Grundarfjarðar og fékk nafnið Drangur SH 511. 

Í aprílmánuði 1996 fær nafnið Arnarnúpur ÞH272 með heimahöfn á Raufarhöfn og var breytt til veiða með nót.

Haustið 1998 fékk Arnarnúpur nafnið Seley SU 210 og var í eigu Samherja til ársins 2004 er skipið var selt utan í brotajárn.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd