Torfi Björnsson ÍS 16

1399. Torfi Björnsson ÍS 16 ex Patrekur BA 64. Ljósmynd Vigfús Markússon.

Hér gefur að líta myndir af dragnótabátnum Torfa Björnssyni ÍS 16 frá Flateyri við veiðar en myndirnar tók Vigfús Markússon fyrir skömmu.

Það er Tjaldtangi ehf. sem gerir hann út en fyrirtækið keypti bátinn frá Patreksfirði í vor en þar bar hann nafnið Patrekur BA 64 og hafði gert frá árinu 2015.

Upphaflega og lengst af hét báturinn Haukaberg SH 20 en hann var smíðaður árið 1974 í skipasmíðastöð Þorgeirs & Ellerts á Akranesi.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd