Viktor EA 71

1153. Viktor EA 71 ex Gói ÞH 25. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Viktor EA 71 kemur hér að landi á Dalvík sumarið 2009 en þá var hann gerður út til ferðaþjónustu. Báturinn var smíðaður hjá Skipasmíðastöð Austfjarða hf. á Seyðisfirði árið 1971 og hét upphaflega Sæþór SU 175 með heimahöfn á Eskifirði.  Hér má lesa nánar … Halda áfram að lesa Viktor EA 71 →

Haraldur Böðvarsson AK 12

1435. Haraldur Böðvarsson AK 12 ex Båtsfjord. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Haraldur Böðvarsson AK 12 var keyptur til Íslands árið 1975 og kom til heimahafnar á Akranesi þann 30. júlí það ár Togarinn, sem áður bar nafnið Båtsfjord og var 299 brl. að stærð, var keyptur frá Noregi en hann var smíðaður hjá Storviks Mek. Verksted A/S … Halda áfram að lesa Haraldur Böðvarsson AK 12 →

Svanborg SH 404

2344. Svanborg SH 404. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Svanborg SH 404 frá Ólafsvík liggur hér við bryggju í Hafnarfirði þar sem hún var smíðuð hjá Véla- og skipaþjónustunni Ósey hf. árið 1999. Skrokkur bátsins var smíðaður af Crist Spolka í Póllandi en báturinn var 42 BT að stærð. Báturinn, sem smíðaður fyrir Útgerðarfélagið Feng ehf. Ólafsvík, fórst … Halda áfram að lesa Svanborg SH 404 →

Rauðinúpur við bryggju á Raufarhöfn

2262. Rauðinúpur ÞH 160 ex Júlíus Havsteen ÞH 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Rauðinúpur ÞH 160 liggur hér við bryggju á Raufarhöfn um árið og það áður en hann fór í breytingarnar í Póllandi árið 1999. Rauðinúpur ÞH 160 hét áður Júlíus Havsteen ÞH 1 en upphaflega Quaasiut II. Hann var smíðaður árið 1987 fyrir Grænlendinga og fór smíðin … Halda áfram að lesa Rauðinúpur við bryggju á Raufarhöfn →

Þinganes SF 25

2040. Þinganes SF 25. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Þinganes SF 25 kemur hér til hafnar á Hornafirði sumarið 2004 en Þinganes er eitt fjögurra systurskipa sem smíðuð voru á sínum tíma fyrir Íslendinga hjá Carnave Eir Navais Sa smíðastöðinni í Aveiro í Portúgal. Árið 2021 seldi Skinney – Þinganes bátinn, sem þá var orðinn ÁR … Halda áfram að lesa Þinganes SF 25 →

Egill Halldórsson SH 2

1126. Egill Halldórsson SH 2 ex Þorsteinn SH 145. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Ólafsvíkurbáturinn Egill Halldórsson SH 2 liggur hér við bryggju í Hafnarfirði um árið en hann hét upphaflega Skálavík SU 500 og var smíðaður árið 1970 hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar hf. Báturinn hefur borið ýmis nöfn í gegnum tíðina og tekið talsverðu breytingum og mælist nú 65 BT … Halda áfram að lesa Egill Halldórsson SH 2 →