
Vigfús Markússon tók þessa mynd af flutningaskipinu Silver Pearl á Siglufirði fyrir skömmu.
Skipið, sem siglir undir færeysku flaggi með heimahöfn í Þórshöfn, var smíðað hjá Ørskov Yard í Frederikshavn í Danmörku árið 1985.
Það bar nafnið Ice Pearl til ársins 1995 þegar það fékk nafnið Nordjarl en hefur borið núverandi nafn frá árinu 2015.
Silver Pearl er 95,55 metrar að lengd, breidd þess er 17,6 metrar og það mælist 3,968 GT að stærð.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution