Mark ROS 777 að veiðum

IMO:9690688. Mark ROS 777. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2020. Eiríkur Sigurðsson skipstjóri á Reval Viking tók þessa mynd af þýska togaranum Mark ROS 777 í morgun. Togarinn var að veiðum norður af Nordkap en Reval Viking á stími inn til Tromsø eftir rækjuveiðar í Smugunni. Togarinn, sem er 84 metra langur og 16 metra breiður, var … Halda áfram að lesa Mark ROS 777 að veiðum

Trudovaya Slava

IMO 6505076. Trudovaya Slava. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Trudovaya Slava heitir þetta 12,487 brúttótonna skip sem pabbi myndaði þegar hann var á Dagfara ÞH 70 við síldveiðar norður í höfum. 1968 eða þar um bil. Þetta skip var byggt í Kiel í Vestur-Þýskalandi árið 1965 og var einhversskonar verksmiðjuskip. Þarna má sjá síldartunnur og því má … Halda áfram að lesa Trudovaya Slava

Súlan EA 300 á Skjálfanda

1060.Súlan EA 300. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér er Súlan EA 300 á leið inn Skjálfandann um árið en hún lagði upp hjá Fiskiðjusamlagi Húsavíkur. Var að mig minnir á fiskitrolli en sennilega á rækju yfir sumarið. Súlan var 354 brl. að stærð, smíðuð í Fredrikstad í Noregi 1967 fyrir Leó Sigurðsson á Akureyri. Hún var lengd  … Halda áfram að lesa Súlan EA 300 á Skjálfanda

Sveinn Guðmundsson GK 315

709. Sveinn Guðmundsson GK 315 ex Árni Ólafur GK 315. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér verið að landa úr Sveini Guðmundssyni GK 315 í Sandgerðishöfn en hans heimahöfn var Garðurinn. Sveinn Guðmundsson GK 315 var 21 tonna eikarbátur, smíðaður í Danmörku árið 1933 og gerður út frá Sandgerði en skráður í Garðinum eins og áður segir. … Halda áfram að lesa Sveinn Guðmundsson GK 315

Hafbjörg EA 23 á leið inn Skjálfandann

62. Hafbjörg EA 23 ex ex Jón Bjarnason SF 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hafbjörg EA 23 frá Hauganesi siglir hér inn Skjálfandann um árið en hún var gerð héðan út til úthafsrækjuveiða um tíma. Eigandi og útgerð Auðbjörg s/f á Hauganesi við Eyjafjörð. Hafbjörg EA 23 hefur áður komið við sögu á síðunni þar sem … Halda áfram að lesa Hafbjörg EA 23 á leið inn Skjálfandann

Skálavík ÁR 185

1126. Skálavík ÁR 185 ex Skálavík ÞH 178. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1982. Skálavík ÁR 185 , sem hér sést koma að bryggju í Þorlákshöfn á vetrarvertíðinni 1982, var gerð út af Ragnari Jónssyni á Eyrarbakka. Skálavík var smíðuð árið 1970 hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar hf. fyrir Þjóðrek hf. Djúpavogi en 1973 var hún seld til Þórshafnar. … Halda áfram að lesa Skálavík ÁR 185

Pálína Þórunn GK 49 landaði í Grindavík

2449. Pálína Þórunn GK 49 ex Steinunn SF 10. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2020. Togskipið Pálína Þórunn GK 49 kom til hafnar í Grindavík síðdegis í dag og landaði en kallarnir voru með nánast fullfermi.. Jón Steinar tók þessar myndir en aflinn var um 175 kör eftir sólarhring á veiðum. Aflinn fékkst vestur af Surtinum. … Halda áfram að lesa Pálína Þórunn GK 49 landaði í Grindavík