1016. Sigurbjörg ÓF 1. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Á þessari mynd Hreiðars Olgeirssonar af síldarmiðunum má sjá Sigurbjörgu ÓF 1 hvar hún siglir framundan Dagfara ÞH 70. Sigurbjörg ÓF 1 var smíðuð í Slippstöðinni á Akureyri fyrir Magnús Gamalíesson á Ólafsfirði og kom hún til heimahafnar í fyrsta skipti þann 13. ágúst 1966. Sigurbjörg ÓF 1 … Halda áfram að lesa Sigurbjörg ÓF 1
Month: apríl 2020
Gleðilega páska – Happy Easter
2447. Ósk ÞH 54 ex Guðný NS 7. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Með þessari mynd af grásleppubátnum Ósk ÞH 54 sem tekin var í gær fylgir páskakveðja til lesenda síðunnar um allan heim. With this photo of the small boat Ósk ÞH 54 that was taken yesterday, Easter greetings are sent from Húsavík to readers … Halda áfram að lesa Gleðilega páska – Happy Easter
Björgunarsveitin Þorbjörn
2743. Oddur V. Gíslason. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Sjóflokkur björgunarsveitarinnar skrapp út frá Grindavík til æfinga í dag og tók Jón Steimar þessar myndir við það tækifæri. Þeir voru meðal annars að æfa sig á nýjan harðbotna slöngubát sem sveitin festi nýverið kaup á. Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík er ein öflugasta sjóbjörgunarsveit landsins og er sú … Halda áfram að lesa Björgunarsveitin Þorbjörn
Selfoss kom til Húsavíkur í dag
IMO 9433456. Selfoss ex Shopia. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Selfoss, skip Eimskipafélags Íslands hf. kom til Húsavíkur eftir hádegi í dag og lagðist að Bökugarðinum þar sem vinna hófst strax við upp- og útskipun. Selfoss er 700 gámaeininga skip, 130 metra langt, 21 metra breitt og 7,464 brúttótonn að stærð. Eimskip keypti skipið, sem smíðað var … Halda áfram að lesa Selfoss kom til Húsavíkur í dag
Sóley kemur að landi
7382. Sóley ÞH 28 ex Íshildur SH 160. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Þessar myndir voru teknar þegar grásleppubáturinn Sóley ÞH 28 sem Jóhann Gunnarsson gerir út kom að landi á Húsavík í dag. Sóley ÞH 28 hét upphaflega Gnoð HF 25 og var smíðuð árið 1993 fyrir Jón Gíslason Hafnarfirði í Bátasmiðju Guðmundar ehf. í … Halda áfram að lesa Sóley kemur að landi
Maxi liggur við festar á Skjálfanda
IMO 9180865. Maxi við festar á Skjálfanda í morgun. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Flutningaskipið Maxi liggur nú við festar á Skálfanda og bíður þess að komast upp að Bökugarðinum í Húsavíkurhöfn. Skipið, sem smíðað var árið 1999 í Hollandi, siglir undir fána Antigua & Barbuda. Það er 112 metra langt, 15 metra breitt og mælist 4,503 … Halda áfram að lesa Maxi liggur við festar á Skjálfanda
Ólafur Magnússon EA 250
161. Ólafur Magnússon EA 250. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Ólafur Magnússon EA 250 var mikið aflaskip á sínum tíma og hér er hann drekkhlaðinn síldarfarmi á sjöunda áratug síðustu aldar. Ólafur Magnússon EA 250 var smíðaður árið 1960 í Brattvaag Skipsinnredning AS í Brattvaag í Noregi og hafði smíðanúmer 9 frá stöðinni. Hann mældist 173 brl. … Halda áfram að lesa Ólafur Magnússon EA 250
Þórir SF 77
91. Þórir SF 77 ex Helga RE 49. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Rækjubáturinn Þórir SF 77 landaði talsvert á Húsavík þegar úthafsrækjuveiðin úti fyrir Norðurlandi var og hét. Þinganes ehf. keypti Þóri SF 77 af Ingimundi h.f í Reykjavík en hann hét Helga RE 49 og var mikið aflaskip. Þórir var smíðaður í Noregi árið 1956 … Halda áfram að lesa Þórir SF 77
Geir ÞH 150
462. Geir ÞH 150 ex Eskey SF 54. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Á þessum myndu Hreiðars Olgeirssonar frá því snemma á níunda áratug síðustu aldar má sjá Þórshafnarbátinn Geir ÞH 150 draga netin á Skjálfandaflóa. Gæti hafa verið vorið 1983. Geir ÞH 150 hét áður Eskey SF 54 en upphaflega Glófaxi NK 54. Smíðaður í Danmörku … Halda áfram að lesa Geir ÞH 150
Frú Magnhildur
1092. Frú Magnhildur VE 22 ex Einsi Jó GK 19. Ljósmynd Þorgeir Baldursson. Frú Magnhildur VE 22 var smíðuð í Bátalóni h/f í Hafnarfirði árið 1969 og hét upphaflega Portland VE 97. Báturinn var smíðaður fyrir bræðurnar Friðrik og Benóný Benónýssyni í Vestmannaeyjum sen áttu hann til ársins 1973. Þá var báturinn seldur til Keflavíkur … Halda áfram að lesa Frú Magnhildur









