Þorkell Árnason GK 21

1231. Þorkell Árnason GK 21 ex Hafalda SU 155. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þorkell Árnason GK 21 úr Garðinum er á þessum myndum sem teknar voru á mismunandi tímum að koma til hafnar í Sandgerði en þaðan var hann lengstum gerður út. Báturinn var smíðaður í Dráttarbrautinni hf. í Neskaupsstað 1972 fyrir Hafölduna h/f á Eskifirði. … Halda áfram að lesa Þorkell Árnason GK 21 →

Elín SH 170

6859. Elín SH 170. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Elín SH 170 var smíðuð í Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 1987 og er tæpar 6 brl. að stærð. Báturinn er í eigu Beiti ehf. og er með heimahöfn í Stykkishólmi en upphaflega var hann smíðaður fyrir Kristinn Gestsson þar í bæ. Báturinn hefur verið í eigu … Halda áfram að lesa Elín SH 170 →

Dala Rafn VE 508

1379. Dala Rafn VE 508 ex Ölduljón VE 120. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Dala Rafn VE 508 var smíðaður hjá Slippstöðinni á Akureyri 1974 og hafði fengið nafnið Kópanes BA 99 þegar hann var sjósettur. Báturinn var upphaflega smíðaður fyrir Einhamar hf. á Bíldudal en áður en til afhendingar kom seldi fyrirtækið bátinn til Mumma hf. … Halda áfram að lesa Dala Rafn VE 508 →

Síldin AK 88

1774. Síldin AK 88. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Síldin AK 88 var smíðuð fyrir Guðjón Gíslason í Bátastöðinni Knörr ehf. á Akranesi árið 1987. Báturinn , sem var rétt innan við 10 brl. að stærð, var einn af mörgum bátum sömu gerðar sem Körr smíðaði á þessum tíma. Síldin var gerð út frá Akranesi til ársins … Halda áfram að lesa Síldin AK 88 →

Margrét HF 148

1331. Margrét HF 148 ex Margrét SI 48. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Margrét HF 148 hét Árni Gunnlaugs ÍS 32 og var smíðaður fyrir Bolvíkinga árið 1973 í Bátalóni í Hafnarfirði.  Eigendur Árna Gunnlaugs ÍS 32, sem var 11 brl. að stærð voru Sverrir Sigurðsson og Friðberg Emanúelsson. Báturnn var seldur til Vestmannaeyja árið 1976 þar … Halda áfram að lesa Margrét HF 148 →

Sigurður Þorleifsson GK 256

1333. Sigurður Þorleifsson GK 256 ex Jóhann Guðnason KE 77. Ljósmynd Þór Jónsson. Sigurður Þorleifsson GK 256 hét upphaflega Fjölnir ÍS 177 og var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri árið 1973. Fjölnir var smíðaður fyrir Sæbjörgu hf. á Þingeyri og var sjósettur þann 19. október 1973 ásamt Garðari II SH 164 frá Ólafsvík. Fjölnir ÍS … Halda áfram að lesa Sigurður Þorleifsson GK 256 →