Kristbjörg ÞH 44 að dragnótaveiðum á Skjálfanda

1420. Kristbjörg ÞH 44. Ljósmynd Pétur Helgi Pétursson 1986. Þessar myndir af Kristbjörgu ÞH 44 tók Pétur Helgi Pétursson, þá skipverji á Geira Péturs ÞH 344, vorið 1986. Þennan dag var Geiri Péturs að koma úr Breiðafirðinum eftir afar gjöfula netavertíð en við á Kristbjörginni stunduðum dragnótaveiðar heima fyrir á meðan. Það fiskaðist það vel … Halda áfram að lesa Kristbjörg ÞH 44 að dragnótaveiðum á Skjálfanda

Sigurborg AK 375 á Breiðafirði

1019. Sigurborg AK 375 ex Freyja RE 38. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1984. Hér sjáum við Sigurborgina AK 375 frá Akranesi en myndin var tekin á Breiðafirði á vetrarvertíðinni 1984. Sigurborg AK 375 upphaflega Sveinn Sveinbjörnsson NK 55 frá Neskaupsstað, smíðaður í Hommelvik í Noregi 1966.  Sveinn Sveinbjörnsson NK 55 var smíðaður fyrir Múla hf. í … Halda áfram að lesa Sigurborg AK 375 á Breiðafirði

Gitte Henning 1 landar kolmunna á Fáskrúðsfirði

9809265. Gitte Henning 1 FD 950 ex Gitte Henning S349. Ljósmynd Óðinn Magnason 2020. Færeyska uppsjávarskipið Gitte Henning kom til Fáskrúðsfjarðar í gærkveldi með um 3.300 tonn af kolmunna til bræðslu. Á heimaasíðu Loðnuvinnslunnar segir að skipið sé byggt 2018 og er því eitt af nýjustu og stærstu uppsjávarskipum við N-Atlandshaf. Það er 90 metrar … Halda áfram að lesa Gitte Henning 1 landar kolmunna á Fáskrúðsfirði

Sólbakur EA 305

1558. Sólbakur EA 305 ex Dagstjarnan KE 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sólbakur EA 305 lætur hér úr höfn á Akureyri um árið en Útgerðarfélag Akureyringa hf. gerði togarann út um nokkurraára skeið. ÚA keypti togarann, sem hét Dagstjarnan KE 3, síðla árs 1987 og fékk togarinn nafnið Sólbakur EA 305. Sólbakur EA 305 var gerður … Halda áfram að lesa Sólbakur EA 305

Ljósfari ÞH 40 með nótina á síðunni

973. Ljósfari ÞH 40 ex Dagfari ÞH 40. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Ljósfari ÞH 40 hét upphaflega Dagfari ÞH 40 og var smíðaður árið 1965 í Boizenburg A-Þýskalandi fyrir bræðurnar Stefán og Þór Péturssyni á Húsavík.  1967 fékk fyrirtæki þeirra bræðra, Barðinn hf., tvö ný skip sem einnig voru smíðuð í Boizenburg en voru ívið  stærri. Þau … Halda áfram að lesa Ljósfari ÞH 40 með nótina á síðunni

Steinunn kemur að landi í Þorlákshöfn

2966. Steinunn SF 10. Ljósmynd Guðmundur Rafn Guðmundsson 2020. Gundi skipverji á Frosta ÞH 229 tók þessar myndir í dag þegar Steinunn SF 10 kom til hafnar í Þorlákshöfn. Frosti lá þar inni vegna brælu og eins og sjá má á myndunum var hörkubræla úti fyrir. 2966. Steinunn SF 10. Ljósmyndir Guðmundur Rafn Guðmundsson 2020. … Halda áfram að lesa Steinunn kemur að landi í Þorlákshöfn

Skálavík SH 208

1354. Skálavík SH 208 ex Harpa II GK 101. Ljósmynd Alfons Finnsson. Skálavík SH 208, sem hér sést á dragnótaveiðum á Breiðafirði, hét upphaflega Múli ÓF 5 og var smíðaður á Akureyri árið 1974. Báturinn var smíðaður á Bátaverkstæði Gunnlauga og Trausta og mældist 36 brl. að stærð. Hann var búinn 350 hestafla Caterpillar aðalvél. … Halda áfram að lesa Skálavík SH 208