
Netabáturinn Eldhamar GK 13, í eigu samnefnds útgerðarfélags, kemur hér að landi í Grindavík um árið en hvaða ár er spurning.
Eldhamar GK 13 hét upphaflega Seley SU 10 frá Eskifirði og var smíðaður í Flekkefjord í Noregi árið 1966. Hér má lesa örlítið um bátinn sem var seldur til Króatíu árið 2007 þar sem hann fékk nafnið Bibe og er notaður í ferðaþjónustu.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution