Otur EA 162

1103. Otur EA 162 ex Búi EA 100. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson.

Otur EA 162 frá Dalvík hét upphaflega Einar Þórðarson NK 104 og var smíðaður hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar árið 1970.

Báturinn var 47 brl. að stærð en var lengdur árið 1986 og mældist þá 57,66 brl. að stærð.

Skipt var um brú á bátnum um 1990 en myndin að ofan var tekin fyrir það.

Einar Þórðarson NK 104 var seldur til Siglufjarðar árið 1972 þar sem hann fékk nafnið Hlíf SI 24 en tveim árum síðar var hann kominn til Keflavíkur og fékk nafnið Hafborg KE 54.

Árið 1978 er báturinn seldur norður á Dalvík þar sem hann fékk nafnið Búi EA 100 og 1981 fékk hann nafnið Otur EA 162 og Dalvík áfram heimahöfnin.

Það var svo árið 1999 sem báturinn var seldur til Vestmannaeyja og fékk nafnið Bjarmi VE 66.

Bjarmi VE 66 fórst 10 sjómílur undan Þrídröngum 22. febrúar 2002 og með honum tveir menn.

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF SIF, bjargaði tveim skipverjum úr sjónum.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd