Sirrý ÍS 36 að veiðum

2919. Sirrý ÍS 36 ex Stamsund N-11-VV. Ljósmynd Þór Jónsson 2019. Skuttogarinn Sirrý ÍS 36 frá Bolungarvík er hér að veiðum sunnan við land en myndina tók Þór Jónsson skipverji á Ljósafelli SU 70. Sirrý ÍS 36, sem áður hét Stamsund N-11-VV, var keypt frá Noregi og kom inn í flotann í janúar árið 2016. … Halda áfram að lesa Sirrý ÍS 36 að veiðum

Ilivileq GR-02-201 kom úr sinni fyrstu veiðiferð í gær

Ilivileq GR-02-201 ex Guðmundur í Nesi RE 13. Ljósmynd Óskar Franz 2019. Grænlenski frystitogarinn Ilivileq GR 02-201 frá Qaqqrtoq kom úr sinni fyrstu veiðiferð fyrir nýja eigendur síðdegis í gær. Eins og glöggir menn kannski sjá og vita er þetta fyrrum Guðmundur í Nesi RE 13 sem nú er í eigu grænlenska fyrirtækisins Arctic Prime … Halda áfram að lesa Ilivileq GR-02-201 kom úr sinni fyrstu veiðiferð í gær

Páll Jónsson GK 7 í smíðum í Alkorskipasmíðastöðinni

Nýr Páll Jónsson GK í smíðum í Póllandi. Ljósmynd Kjartan Viðarsson 2019. Nýr Páll Jónsson GK 7 er óðum að taka á sig endanlega mynd í Alkorskipasmíðastöðinni í Gdansk í Póllandi. Stefn er að því að þetta glæsilega 45 metra langa og 10,5 metra breiða línu­skip fari á flot á morgun. Kjartan Viðarsson útgerðarstjóri Vísis … Halda áfram að lesa Páll Jónsson GK 7 í smíðum í Alkorskipasmíðastöðinni

Kaldbakur og Björgúlfur að veiðum

2891. Kaldbakur EA 1 - 2892. Björgúlfur EA 312. Ljósmynd Guðmundur Rafn Guðmundsson 2019. Á þessari mynd Gunda eru skuttogararnir Kaldbakur EA 1 og Björgúlfur EA 312 að veiðum. Myndin var tekin í fyrrdag um borð í þriðja Samherjatogaranum af þessari gerð sem er Björg EA 7. Með því að smella á myndina er hægt … Halda áfram að lesa Kaldbakur og Björgúlfur að veiðum

Þorsteinn ÞH 115 rær frá Suðurnesjum

Þorsteinn ÞH 115 ex Þorsteinn GK 15. Ljósmynd Elvar Jósefsson 2019. Þorsteinn ÞH 115 frá Raufarhöfn hefur róið þessa vertíðina, eins og undanfarnar vertíðir, frá Suðurnesjum. Elvar Jósefsson sendi síðunni þessar myndir en þá efri tók hann í gær þegar Þorsteinn kom að landi í Njarðvík. Á þeirri neðri er hann að koma til hafnar … Halda áfram að lesa Þorsteinn ÞH 115 rær frá Suðurnesjum

Komið til hafnar í Reykjavík

Komið til hafnar í Reykjavík. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér birtast myndir sem ég tók í Reykjavík um miðjan níunda áratug síðustu aldar og sýna nokkra fiskibáta koma að landi. 1091. Helgi Magnússon RE 41. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Helgi Magnússon RE 41 var smíðaður fyrir Bíldælinga í Stykkishólmi árið 1969 og hét Helgi Magnússon BA 32. … Halda áfram að lesa Komið til hafnar í Reykjavík

Stjörnutindur SU 159

972. Stjörnutindur SU 159 ex Pétur Ingi KE 32. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1984. Stjörnutindur SU 159 hét upphaflega Þorsteinn RE 303 og hefur nokkuð komið við sögu hér á síðunni enda litríkur ferill hjá þessum bát sem smíðaður var í Þýska alþýðuveldinu árið 1965. Búlandstindur hf. á Djúpavogi keypti bátinn frá Keflavík þar sem hann … Halda áfram að lesa Stjörnutindur SU 159