2841. Sandfell SU 75 ex Óli á Stað GK 99. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Línubáturinn Sandfell SU 75 hefur verið að fiska vel að undanförnu sem endra nær en Jón Steinar tók þessar myndir af bátnum í vikunni. Sandfell er í eigu Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði og hét áður Óli á Stað GK 99. Báturinn er … Halda áfram að lesa Sandfell SU 75
Month: apríl 2020
Swn Splendide kom að Bökugarðinum í morgun
IMO: 9320518. Swn Splendide liggur við festar á Skjálfanda. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Flutningaskipið Swn Splendide, sem legið hefur síðan í fyrradag við festar á Skjálfanda, lagðist að Bökugarðinum í morgun. Skipið, sem var smíðað í Kína árið 2005 og siglir nú undir hollenskum fána, kom með hráefnisfarm til PCC á Bakka. Swn Splendide var … Halda áfram að lesa Swn Splendide kom að Bökugarðinum í morgun
Kaldaskítur
Um borð í Dagfara ÞH. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Þessa mynd tók Hreiðar Olgeirsson um borð í Dagfara ÞH en hvort það var sá fyrri eða síðari er ég ekki klár á. Þarna er kaldaskítur á miðunum og kallarnir eitthvað að græja en Dagfari ÞH 40 kom árið 1965. Hann fékk nafnið Ljósfari ÞH 40 þegar … Halda áfram að lesa Kaldaskítur
Bára ÞH 7
1300. Bára ÞH 7. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Bára ÞH 7 var einn þeirra smábáta sem gerðir voru út til grásleppuveiða frá Húsavík en hún var smíðuð af Herði Björnssyni á Borgarfirði eystra árið 1973 fyrir Jón B. Gunnarsson og Kristinn Lúðvíksson á Húsavík. Bára var smíðuð úr furu og eik og mælist 7,51 brl. að … Halda áfram að lesa Bára ÞH 7
Lýtingur NS 250
972. Lýtingur NS 250 ex Stjörnutindur SU 159. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1989. Þessar myndir af Lýtingi NS 250 frá Vopnafirði voru teknar vorið 1989 en þá vorum við á Geira Péturs ÞH 344 samskipa honum áleiðis til Íslands eftir söluferð til Hull. Sigurgeir Pétursson frændi minn var með Lýting og má sjá honum bregða fyrir … Halda áfram að lesa Lýtingur NS 250
Sæbjörg ST 7 á Húsavík
554. Sæbjörg ST 7 ex Fanney SH 24. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1993. Hér er verið að landa rækju á Húsavík úr Sæbjörgu ST 7 frá Hólmavík sumarið 1993. Sæbjörg ST 7 hét upphaflega Hávarður ÍS 160 og var smíðaður í Danmörku árið 1959 fyrir Ísver h/f á Suðureyri við Súgandafjörð. Lesa má færslu um bátinn, … Halda áfram að lesa Sæbjörg ST 7 á Húsavík
Finnur Fríði kom með kolmunna til Fáskrúðsfjarðar
IMO 9279238. Finnur Fríði FD 86. Ljósmynd Óðinn Magnason 2020. Færeyska uppsjávarveiðiskipið Finnur Fríði FD 86 kom til Fáskrúðsfjarðar í dag með tæp 2.200 tonn af kolmunna sem skipið fékk við Írland en hann kláraði þó túrinn við Færeyjar. Finnur Fríði, sem er með heimahöfn í Götu, var smíðaður árið 2003 hjá Langsten Slip & … Halda áfram að lesa Finnur Fríði kom með kolmunna til Fáskrúðsfjarðar
Nafni kemur að
6536. Nafni ÞH 32 ex Halldór Runólfsson NS 301. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér koma feðgarnir á Nafna ÞH 32 að landi eftir línuróður, Jónas er greinilega með hann og Sigmar heitinn Kristjánsson út á dekki. Nafni er af gerðinn Skel 86 frá Trefjum í Hafnarfirði og Sigmar og synir hans gerðu bátinn út í um … Halda áfram að lesa Nafni kemur að
Tveir Reykjavíkurbátar á síldarmiðunum
972. Þorsteinn RE 303 - 1002. Gísli Árni RE 375. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Hér má sjá tvo síldarbáta sem höfðu Reykjavík sem heimahöfn þegar myndin var tekin og annar þeirra miklu mun lengur. Þriðji báturinn sem er lengst tv. gæti hafa verið í eigu Haraldar Böðvarssonar & co á Akranesi, Höfrungur III ? Sá fjórði … Halda áfram að lesa Tveir Reykjavíkurbátar á síldarmiðunum
Kristinn HU 812
2860. Kristinn HU 812 ex Kristinn SH 812. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Jón Steinar tók þessar myndir í vikunni af línubátnum Kristni HU 812 koma til hafnar í Grindavík. aflinn var um 11 tonn. Kristinn var smíðaður í Trefjum í Hafnarfirði árið 2010 og er af gerðinni Cleopatra 50. Báturinn var smíðaður fyrir útgerðarfélagið Rederij … Halda áfram að lesa Kristinn HU 812









