IMO:9226736. Lokys LK 926 ex Qaqqatsiaq. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2020. Hér koma tvær myndir Eiríks Sigurðssonar af rækjutogaranum Lokys LK 926 sem útgerðarfyrirtækið Reyktal gerir út til rækjuveiða. Reyktal keypti togaranna, sem hét Qaqqatsiaq GR-6-403 , af Royal Greenland í fyrra. Togarinn hét upphaflega Steffen C GR-6-22 og var smíðaður árið 2001. Hann er 69,8 metrar … Halda áfram að lesa Lokys LK 926
Month: apríl 2020
Hrafn GK 111
1401. Hrafn GK 111 ex Ágúst GK 95. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Línuskipið Hrafn GK 111 kom til hafnar í Grindavík í hádeginu dag en eins og sjá má var snjókoma sunnanlands. Það er Þorbjörn hf. sem gerir Hrafn GK 111 út en upphaflega er þetta Gullberg VE 292 frá Vestmannaeyjum. Gullberg VE 292 var … Halda áfram að lesa Hrafn GK 111
Þorlákshöfn í dag
Skip við bryggju í Þorlákshöfn í dag. Ljósmynd Guðmundur Rafn Guðmundsson 2020. Hér koma nokkrar myndir sem Gundi tók í Þorlákshöfn í dag en þar liggja bátar inni vegna brælu. Skip við bryggju í Þorlákshöfn í dag. Ljósmyndir Guðmundur Rafn Guðmundsson 2020. Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri … Halda áfram að lesa Þorlákshöfn í dag
Barðinn GK 475
160. Barðinn GK 475 ex Jón Sturlaugsson ÁR 7. Ljósmynd Þorgeir Baldursson. Þorgeir Baldursson tók þessa mynd af Barðanum GK 475 þegar síldveiðar voru stundaðar inn á fjörðum austanlands. Sennilega 1986. Barðinn GK 475 hét upphaflega Ólafur Bekkur ÓF 2 og var smíðaður í Risør í Noregi árið 1960 fyrir Bæjarsjóð Ólafsfjarðar. Selt hlutafélaginu Þresti … Halda áfram að lesa Barðinn GK 475
Veidar við bryggju í Tromsø
LEPY. Veidar M-1-G frá Álasundi. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2020. Eiríkur Sigurðsson skipstjóri á Reval Viking tók þessa mynd á dögunum þegar hann var á útleið frá Tromsø. Myndin sýnir eitt glæsilegasta línuskip Norðmanna, Veidar M-1-G frá Álasundi. Skipið var afhent Veidar AS frá skipasmíðastöðinni Simek AS í Flekkufirði í mars árið 2018. Skipið er 55,5 … Halda áfram að lesa Veidar við bryggju í Tromsø
Frár VE 78 á toginu
1595. Frár VE 78 ex Frigg VE 41. Ljósmynd Guðmundur Rafn Guðmundsson 2020. Gundi á Frosta tók þessar myndir af togbátnum Frá VE 78 þar sem hann var að veiðum sl. fimmtudag. Frár VE 78 var smíðaður í Campeltown í Skotlandi árið 1977 fyrir Færeyinga og hét Von. Keyptur til Vestmannaeyja 1981 og fékk nafnið … Halda áfram að lesa Frár VE 78 á toginu
Helga María RE 1
1868. Helga María RE 1 ex Helga María AK 16. Ljósmynd Guðmundur Rafn Guðmundsson 2020. Gundi á Frosta ÞH 229 sendi þessa mögnuðu myndir af Helgu Maríu RE 1 sem eitt sinn var AK 16. Upphaflega þó Haraldur Kristjánsson HF 2, smíðaður í Flekkefjord í Noregi 1988 fyrir Sjólastöðina í Hafnarfirði. Hér má lesa nánar … Halda áfram að lesa Helga María RE 1
Héðinn ÞH 57
1006. Héðinn ÞH 57 kemur nýr til Húsavíkur. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1966. Hér birtast nú nokkrar myndir sem Hreiðar Olgeirsson tók í júnímánuði 1966 þegar Héðinn ÞH 57 kom nýr til Húsavíkur. Íslendingur blað Sjálfstæðismanna í Norðurlandskjördæmi eystra birti eftirfarandi frétt 9 júní 1966: Í fyrradag bættist Húsvíkingum nýr stálbátur í flotann, Héðinn ÞH 57, … Halda áfram að lesa Héðinn ÞH 57
Síðasta sjóferðin á gömlu Fanney
398. Fanney ÞH 130 ex Byr NK 77. Ljósmynd úr safni Ívars Júlíussonar. Ívar Júlíusson hafði samband við mig í vikunni og sagðist hafa nokkrar myndir handa mér sem ég mætti nota að vild. Þær voru teknar síðla sumars 1975 þegar farið var í síðustu sjóferðina á gömlu Fanney ÞH 130 en siglt var yfir … Halda áfram að lesa Síðasta sjóferðin á gömlu Fanney
Stapavíkin á siglingu
1121. Stapavík SI 5 ex Þorleifur Jónsson SI 80. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Það hefur áður birst á síðunni mynd úr þessari syrpu af Stapavík SI 5 sem ég tók, rétt fyrir 1990, þegar við á Geira Péturs ÞH 344 mættum henni er við vorum á útleið frá Siglufirði. Stapavík SI 5 var í eigu Þormóðs … Halda áfram að lesa Stapavíkin á siglingu









