
Raymond Bjørkås útgerðarmaður frá Båtsfjord í Noregi fékk nú á dögunum afhentan nýjan bát frá Bátasmiðjunni Trefjum ehf. í Hafnarfirði.
Báturinn, sem nefnsit Fr er af gerðinnni Cleopatra 36B og verður Raymond sjálfur skipstjóri bátnum en þrír verða í áhöfn hans.
Nýi báturinn, sem heitir Frøya, er 11 metrar að lengd og mælist 18brúttótonn.
Aðalvél bátsins er af gerðinni Doosan 4V158TIM 600hö tengd ZF360IV gír. Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC og Olex.
Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til línuveiða. Línubúnaður kemur frá Mustad í Noregi. Lífbátur og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.
Rými er fyrir 16stk 660lítra kör í lest. Stór borðsalur og fullbúin eldunaraðstaða er í brúnni. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar. Salerni með sturtu.
Bátnum er kominn til Noregs og er á leið til heimahafnar.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.