
Sveinn Jónsson KE 9 hét áður Dagstjarnan KE 9 og var smíðaður hjá A/S Storviks Mek. Verksted í Kristiansand í Noregi.
Togarinn kom í fyrsta skipti til heimahafnar í Keflavík þann 14. nóvember árið 1973.
Upphaflega hét togarinn Affjordssund en fór aldrei til veiða undir því nafni áður en Sjöstjarnan hf. keypti hann til landsins.
Árið 1977 keyptu Miðnes hf. og Keflavík hf. togarann, sem var 299 brl. að stærð, og nefndu Svein Jónsson KE 9.
Sveinn Jónsson KE 9 var seldur til Suður – Afríku árið 2000 en þá var hann í eigu Haraldar Böðvarssonar hf.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution