
Loðnuskipið Sigurður RE 4 lætur hér úr höfn í Reykjavík um eða upp úr miðjum níunda áratug síðustu aldar.
Upphaflega hét skipið Sigurður ÍS 33 og síðar RE 4 og enn síðar VE 15. Það var smíðað í Þýskalandi árið 1960 fyrir Ísfell h/f á Flateyri. Sigurði var breitt í nótaskip í Noregi og kom þaðan vorið1974. Hann var yfirbyggður árið 1976 í Stálvík. Það var svo skipt um brú á skipinu í Slippstöðinni á Akureyri, ca. árin 1984-5.
Þegar Sigurður VE 15 varð 40 ára í september árið 2000 birtist grein um hann í Morgunblaðinu og m.a mátti lesa þetta þar:
NÓTASKIPIÐ Sigurður VE varð 40 ára gamalt 25. september síðastliðinn en skipið er eitt það aflasælasta í Íslandssögunni.
Sigurður á sér allsérstæða sögu en upphaflega var skipið byggt sem síðutogari í Bremerhaven í Þýskalandi. Það var útgerðin Ísfell á Flateyri sem lét smíða skipið en eigandi útgerðarinnar var Einar Sigurðsson.
Skipið bar í fyrstu einkennisstafina ÍS 33 en kom þó sjaldan í heimahöfn og var lengstum gert út frá Reykjavík og bar því einkennisstafina RE 4. Þá stafi bar Sigurður þar til fyrir fáum árum þegar þeim var breytt í VE 15.
Sigurður var einn af fjórum svokölluðum þúsund tonna togurum sem smíðaðir voru fyrir Íslendinga en hinir voru Maí GK, Freyr RE og Víkingur AK. Maí og Freyr stoppuðu hins vegar stutt við hér á landi og voru seldir erlendis, en Víkingur er enn gerður út frá Akranesi
Sigurður VE 15 fór í niðurrif til Danmerkur árið 2013.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution