
Lómur HF 177 var smíðaður af Hjørungavaag Verksted í Noregi árið 1988 fyrir grænlenska útgerð og fékk nafnið Qaqqaliaq.
Útgerðarfélagið Lómur í Hafnarfirði keypti togarann til landsins árið 1997 og fékk hann þá nafnið Lómur HF 177.
Togarinn var seldur til Eistlands 1999 og fékk þá nafnið Baltic Lomur og var gerður út frá Tallinn. Þaðan var hann seldur aftur til Grænlands 2003.
Í marsmánuði árið 2024 sökk togarinn við Grænland, mannbjörg varð.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution