Húsey ÞH 382

1346. Húsey ÞH 382 ex Hólmanes SU 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005.

Hér má sjá Húsey ÞH 382 leggja upp í veiðiferð frá Húsavík í aprílmánuði árið 2005 og þær urðu ekki margar eftir það.

Íshaf hf. á Húsavík gerði Húsey ÞH 382 út á úthafsrækju frá því snemma árs 2004 og þangað til vorsins 2005 (Með hléum) en honum var siglt til Danmerkur í brotajárn í júnímánuði þetta ár.

Togarinn hét upphaflega og lengst af Hólmanes SU 1 og var smíðaður á Spáni og kom til heimahafnar á Eskifirði 7. febrúar það árið 1974.

Hér má lesa nánar um Hólmanesið.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd