
Mars KE 197 hét upphaflega Stefán Árnason SU 85 frá Fáskrúðsfirði og var smíðaður í Danmörku árið 1955.
Báturinn var 67 brl. að stærð og var gerður út frá Fáskrúðsfirði til ársins 1969 en þá var hann seldur til Keflavíkur þar sem hann fékk nafnið Þerney KE 33.
Í janúarmánuði árið 1970 strandaði Þerney í Keflavíkurhöfn og eftir að hann náðist út var hann endurbyggður og lengdur í Njarðvík. Eftir það mældist hann 78 brl. að stærð.
Báturinn var seldur til Hornafjarðar árið 1972 og fékk hann nafnið Sigurður Ólafsson SF 44. Vorið 1979 var hann seldur í Stykkishólm þar sem hann fékk nafnið Sigurður Sveinsson SH 36 en í desember ári síðar var hann seldur til Keflavíkur þar sem hann fékk nafnið Mars KE 197.
Í júní 1985 var báturinn seldur til Reykjavíkur og varð Mars RE 197 en um haustið var Mars seldur á Drangsnes og varð ST 150
Haustið 1987 var Mars seldur til Ólafsfjarðar þar sem hann fékk nafnið Guðvarður ÓF 44.
Guðvarður fór í úreldingu þegar Árni ÓF 44 var keyptur til landsins árið 1991 og lá sá gamli í nokkur ár eftir það í Ólafsfjarðarhöfn.
Í janúar 1995 átti að draga hann eitthvert suður í slipp en ekki vildi betur til en að hann sökk út af Hornbjargi.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution