1156. Sólfari AK 170 ex Fagurey SH 71. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér er Sólfari AK 170 að færa sig til í Hafnarfjarðarhöfn um árið en Sólfari hét upphaflega Arinbjörn RE 54 og var smíðaður á Akureyri 1971. Í 12. tbl. Ægis 1971 sagði m.a: Í apríl mánuði s.l. hljóp af stokkunum nýtt 149 brl. stálfiskiskip … Halda áfram að lesa Sólfari AK 170
Month: apríl 2019
Maersk Lota undir krananum í Malaga
Maersk Lota undir krananum í Malaga. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Flutningaskipið Maersk Lota var í höfní Malaga í upphafi vikunnar og þá var þessi mynd tekin. Skipið var smíðað árið 2012 og er 300 metrar að lengd, breidd þess er 45 metrar og það mælist 89,505 GT að stærð. Það siglir undir fána Singapore og … Halda áfram að lesa Maersk Lota undir krananum í Malaga
Þórður ÞH 92
5476. Þórður ÞH 92. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér er Þórður ÞH 92 í fjörunni neðan Beinabakkans á Húsavík og greinilega verið að skvera bátinn. Jóhann Sigvaldason bátasmiður á Húsavík smíðaði Þórð ÞH 92 fyrir Viðar Þórðarson árið 1961. Báturinn var 3,51 brl. að stærð, smíðaður úr furu og eik. Búinn 33 heestafla Volvo Penta. Ekki … Halda áfram að lesa Þórður ÞH 92
Barði NK 120
1976. Barði NK 120 ex Norma Mary H 110. Ljósmynd Þór Jónsson. Togarinn Barði NK 120 er hér á siglingu en myndina tók Þór Jónsson á Djúpavogi. Togarinn Barði var smíðaður í Flekkefjord í Noregi fyrir Skipaklett hf. á Reyðarfirði árið 1989 og bar upphaflega nafnið Snæfugl. Skipaklettur hf. og Síldarvinnslan sameinuðust árið 2001. Um … Halda áfram að lesa Barði NK 120
Stapin frá Tóftir
Stapin FD 32 ex Husby Senior M-13-AV. Ljósmynd Óskar Franz 2016. Óskar Franz tók þessar myndir sumarið 2016 og sýna þær færeyska línuskipið Stapin FD 23 frá Tóftum koma til hafnar í Vestmannaeyjum. Þarna voru frændur okkar nýbúnir að kaupa bátinn frá Noregi þar sen hann hét Husby Senior M-13-AV. Hann er 42. metrar að … Halda áfram að lesa Stapin frá Tóftir
Magnús ÞH 34 bæði blár og rauður
2076. Magnús ÞH 34 ex Keilir AK 26. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Fiskverkunin Ugg ehf. á Húsavík keypti Keili Ak 26 vorið 2004 og gaf honum nafnið Magnús ÞH 34. Magnús ÞH 34 var gerður út frá Húsavík um nokkurra ára skeið en á síðari hluta ársins 2010 var hann seldur til Þórshafnar á Langanesi. … Halda áfram að lesa Magnús ÞH 34 bæði blár og rauður
Maniitsoq T-52-S
LAIJ. Maniitsoq T-52-S. Ljósmynd KEÓ 2019 Norski báturinn Maniitsoq T-52-S kom inn á Stakksfjörðinn í morgun en erindi hans var að koma af sér manni. Hafnsögubáturinn Auðunn fór að bátnum til að ná í manninn og tók Karl Einar Óskarsson þessa mynd þegar lagt var af stað í land aftur. Maniitsoq T-52-S var smíðaður 1960 … Halda áfram að lesa Maniitsoq T-52-S
Fróði II ÁR 38
2773. Fróði II ÁR 38 ex Endeavour III. Ljósmynd Þór Jónsson. Þór Jónsson tók þessar myndir af Fróða II ÁR 38 koma til hafnar á Djúpavogi. Fróði II ÁR 38 hét áður Endeavour III og var smíðaður árið 1998 í Macduff Yard í Skotlandi. Hann er 27,41 metrar að lengd og 8,52 að breidd. 2773. … Halda áfram að lesa Fróði II ÁR 38
Glænýtt Le Bougainville í höfn í Malaga
Le Bougainville við bryggju í Malaga. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Skemmtiferðaskipið Le Bougainville lá við bryggju í Malaga í gær þegar ég var þar á ferðinni og ekki annað að sjá en þetta sé hið snotrasta skip. Það er glænýtt og telst til lúsxuskemmtiferðaskipa af minni gerðinni og er í eigu franska skipafélagsins PONANT. Það … Halda áfram að lesa Glænýtt Le Bougainville í höfn í Malaga
Dorado 2
Dorado 2 ex Newfound Pioneer. Ljósmynd Haukur Sigtryggur 2019. Skuttogarinn Newfound Pioneer sem verið hefur í klassakoðun í Slippnum á Akureyri hefur fengið nafnið Dorado 2 og siglir nú undir fána Lettlands. Við íslendingar könnumst við hann sem Svalbak EA 2 um tíma en héðan var hann seldur til Kanada þaðan sem hann var reyndar … Halda áfram að lesa Dorado 2









