Stakkur GK 12

7205. Stakkur GK 12 ex Stakkur SI 86. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2026.

Hér gefur að líta myndir af línubátnum Stakk GK 12 á landleið til Grindavíkur í gær.

Hann var þarna ný lagður af stað í land þar sem hann var að draga línuna vestur á víkum rétt vestan við Reykjanesið í blíðuveðri.

Þegar hann kom svo fyrir Reykjanesið var aðeins pus á því þegar hann fékk austan áttina í trýnið.

Aflinn hjá honum þennan daginn var um 2,5 tonn á tólf 400 króka bala.

Stakkur er smíðaður 1989 í Hafnarfirði og hét upphaflega Elín II KE.

Önnur nöfn sem hann hefir borið eru: Árni í Teigi GK, Víglundur Jónsson SH,Láki SH, Portland VE, Fíii SH, Stakkur SH og Stakkur SI.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd