2817. Fríða Dagmar ÍS 103. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Bolvíski línubáturinn Fríða Dagmar ÍS 103 er á þessum myndum að koma inn til Grindavíkur undir kvöld í gær í suðaustan skítveðri eins og ljósmyndarinn orðaði það. Fríða Dagmar ÍS 103 er í eigu útgerðarfélagsins Salting ehf. og var smíðuð hjá bátasmiðjunni Trefjum árið 2012. Upphaflega … Halda áfram að lesa Fríða Dagmar ÍS 103
Month: apríl 2019
Haukaberg SH 20
1399. Haukaberg SH 20. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Haukaberg SH 20 frá Grundarfirði er hér á siglingu á Breiðafirði, sennilega á vetrarvertíðinni 1982 frekar en 1983. Í 16-17 tbl. Ægis 1974 sagði ma. svo frá: 11. október s.l afhenti Þorgeir & Ellert h.f. Akranesi nýtt 104 rúmlesta stálfiskiskip, smíðanúmer 30 hjá stöðinni. Skipið sem ber nafnið … Halda áfram að lesa Haukaberg SH 20
Aquamarine M-0272 frá Murmansk
Aquamarine M-272 ex Orcades Viking. Ljósmynd Óskar Franz 2019. Rússneski togarinn Aquamarine M-272 kom til hafnar í Hafnarfirði í gærmorgun en Rússarnir eru að undirbúa karfavertíðina á Reykjaneshryggnum. Togarinn, sem er í eigu NOREBO útgerðarrisans, var smíðaður árið 1991 og er með heimahöfn í Murmansk. Smíði þessa skips hófst fyrir Færeyinga hjá P/f Skala Skipasmidja … Halda áfram að lesa Aquamarine M-0272 frá Murmansk
Skinney fyrir og eftir breytingar
2732. Skinney SF 20 fyrir breytingar. Ljósmynd Jón Steinar. Hér koma tvær myndir sem sýna Skinney SF 20 fyrir og eftir breytingar sem fram fóru í Póllandi en eins og fyrri færsla sýnir kom skipið til landsins í kvöld. 2732. Skinney SF 20. Ljósmynd Gunnar Óli Sölvason 2019. Með því að smella á myndirnar er … Halda áfram að lesa Skinney fyrir og eftir breytingar
Skinney SF 20 komin til landsins eftir breytingar
2732. Skinney SF 20. Ljósmynd Gunnar Óli Sölvason 2019. Togskipið Skinney SF 20 kom til hafnar í Hafnarfirði í dag og tók Gunnar Óli Sölvason þessar myndir í firðinum. Skipið lagðist að bryggju eftir sex daga siglingu frá Póllandi þar sem það var í lengingu líkt og systurskipið Þórir SF 77. Skipin voru lengd um … Halda áfram að lesa Skinney SF 20 komin til landsins eftir breytingar
Jökull ÞH 259 seldur til Noregs
259. Jökull ÞH 259 við komuna til Reykjavíkur. Ljósmynd Óskar Franz 2019. Fyrir fundi Byggðarráðs Norðurþings á dögunum lá erindi frá GPG Seafood ehf. hvar varðaði forkaupsrétt sveitarfélagsins að fiskiskipinu Jökli ÞH-259. Byggðarráð samþykkti að nýta ekki forkaupsréttinn en að sögn Gunnlaugs Karls Hreinssonar eiganda GPG Seafood ehf. hefur skipið verið selt til Noregs. Jökli var siglt … Halda áfram að lesa Jökull ÞH 259 seldur til Noregs
Akurey KE 121
2. Akurey KE 121 ex Akurey SF 52. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Bæjarráð Hornafjarðar tók þá ákvörðun fyrir síðustu áramót að farga Akurey SF 2 sem verið hefur á þurru landi við höfnina um árabil. Á Fésbókarsíðu sveitarfélagsins segir í dag: Í dag var Akurey rifin en það vekur óhug hjá mörgum enda hefur báturinn mikið … Halda áfram að lesa Akurey KE 121
Mys Cheltinga kom í Hafnarfjörðinn í morgun
Mys Cheltinga X-0524. Ljósmynd Óskar Franz 2019. Frystitogarinn Mys Sheltinga X-0524 frá Kholmsk í Rússlandi kom til Hafnarfjarðar í morgun og lá Óskar Franz fyrir honum þar. Togarinn, sem var afhentur eigendum sínum í janúar 1995, er einn fimmtán togara sem smíðaðir voru í Stralsund í Þýskalandi eftir sömu teikningu og togararnir sem smíðaðir voru … Halda áfram að lesa Mys Cheltinga kom í Hafnarfjörðinn í morgun
Glaður HU 67
1065. Glaður HU 67 ex Glaður KE 67. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1986. Glaður HU 67 er hér að manúera í höfninni á Hvammstanga sumarið 1986. Glaður KE 67 var smíðaður í Svíþjóð 1968 fyrir Glað hf. í Keflavík og var 43 brl. að stærð. Hann var með 300 hestafla Deutz aðalvél . Glaður KE var … Halda áfram að lesa Glaður HU 67
Lagarfoss kom til Helguvíkur nú undir kvöld
Lagarfoss. Ljósmynd KEÓ 2019. Flutningaskipið Lagarfoss kom til hafnar í Helguvík nú undir kvöld og tók Karl Einar Óskarsson þessa mynd úr hafnsögubátnum Auðuni. Lagarfoss er nýjasta skip Eimskips en það var smíðað í Kína árið 2014. Lengd þess er 140,7 metrar og breiddin 23,2 metrar. Mælist 10.106 GT að stærð. Siglir undir færeysku flaggi. … Halda áfram að lesa Lagarfoss kom til Helguvíkur nú undir kvöld









