Dragnótabátar koma til hafnar á Húsavík

1420. Kristey ÞH 25 og 586. Aron ÞH 105. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Kristey ÞH 25 og Aron ÞH 105 koma hér til hafnar á Húsavík eftir dragnótaróður á Skjálfanda. Þetta var árunum 1992-3 gæti ég haldið. Kristey ÞH 25 hét áður Kristbjörg ÞH 44, smíðuð fyrir Korra h/f á Húsavík í Skipavík í Stykkishólmi árið … Halda áfram að lesa Dragnótabátar koma til hafnar á Húsavík

Bergey VE 544

2744. Bergey VE 544. Ljósmynd Hólmgeir Austförð 2019. Hér koma myndir af Bergey VE 544 koma inn til Eyja í brælunnu sl. mánudag. Ljósmyndari sem fyrr Hólmgeir Austfjörð. 2744. Bergey VE 544. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Á heimasíðu Síldarvinnslunar hf. sagði í gær að segja mætti að dagróðrafyrirkomulag ríkti hjá skipum Bergs-Hugins í Vestmannaeyjum um … Halda áfram að lesa Bergey VE 544

Happasæll KE 94

2660. Happasæll KE 94. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Happasæll KE 94 sést hér koma að landi í Keflavík á vetrarvertíðinni árið 2006. Þegar Happasæll KE 94 var sjósettur í desembermánuði árið 2004 kom eftirfarandi frétt í Morgunblaðinu: Stærsti plastbátur landsins var sjósettur frá Grandagarði um helgina, þegar Happasæll KE-94, var sjósettur. Hann er um 30 … Halda áfram að lesa Happasæll KE 94

Dala-Rafn VE 508 kemur inn til Eyja í brælunni

2758. Dala-Rafn VE 508. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Hér koma myndir af Dala-RAfni VE 508 koma til hafnar í Vestmannaeyjum í brælunni í fyrradag. Eins og ég hef skrifað áður hér síðuna var Dala Rafn VE 508 smíðaður í Póllandi árið 2007 fyrir samnefnt útgerðarfélag. Þá var hann grænn en Ísfélag Vestmannaeyja keypti bátinn 2014 … Halda áfram að lesa Dala-Rafn VE 508 kemur inn til Eyja í brælunni

Katrin Jóhanna VA 410 á Donegalflóa

Katrin Jóhanna VA 410 ex Herøy. Ljósmynd Börkur Kjartansson 2019. Eitt þeirra kolmunnaveiðiskipa sem liggur þessa stundina í vari inn á Donegalflóa við Írland er hin færeyska Katrin Jóhanna VA 410 Skipið var keypt til Færeyja seint á síðasta ári frá Noregi en þar bar það nafnið Herøy. Smíðað árið 1997, skrokkurinn í Nauta Shipyard, … Halda áfram að lesa Katrin Jóhanna VA 410 á Donegalflóa

Hoffell SU 80 landaði 1050 tonnum á Fáskrúðsfirði

2885. Hoffell SU 80 ex Smaragd. Ljósmynd Börkur Kjartansson 2019. Á heimasíðu Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði segir frá löndunum kolmunnaskipa en á síðustu þremur dögum hafa þrjú skip landað þar um 5000 tonnum Norderveg H-182-AV kom á laugardagskvöldið með tæp 1.900 tonn, Knester H-9-AV kom á mánudaginn með um 2.000 tonn. Hoffell SU 80, sem er … Halda áfram að lesa Hoffell SU 80 landaði 1050 tonnum á Fáskrúðsfirði

Huginn VE 55 kom með 1300 tonn til Eyja í morgun

Huginn VE 55. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Huginn VE 55 kom með 1300 tonn af kolmunna til hafnar í Vestmannaeyjum í morgun. 2411. Huginn VE 55 kemur að landi en 2744. Bergey VE 544 lætur úr höfn. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Huginn VE 55 var smíðaður í Chile fyrir samnefnt félag árið 2001 og lengdur … Halda áfram að lesa Huginn VE 55 kom með 1300 tonn til Eyja í morgun

Beitir NK 123 í vari við strendur Írlands

2900. Beitir NK 123 ex Gitte Henning S 349. Ljósmynd Börkur Kjartansson 2019. Beitir NK 123 var í vari á Donegalflóa á Írlandi í gær eins og fleiri íslensk kolmunnaveiðiskip. Beitir hét áður Gitte Henning S 349 og var smíðaður í skipasmíðastöðinni Western Baltija Shipbuilding í Litháen en kom nýr til Danmerkur í apríl 2014. Beitir NK 123 … Halda áfram að lesa Beitir NK 123 í vari við strendur Írlands

Eldhamar GK 13

297. Eldhamar GK 13 ex Surtsey VE 123. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Vélbáturinn Eldhamar kemur hér til hafnar í Grindvík um árið en þetta nafn bar báturinn árin 1997 og 1998. Eldhamar GK 13, hét upphaflega Magnús Marteinsson NK 85 var smíðaður 1956 fyrir Svein Magnússon útgerðarmann hjá Frederikssund Skipsværft A/S í Frederikssund í Danmörku árið … Halda áfram að lesa Eldhamar GK 13