Herja ST 166

2806. Herja ST 166. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Þegar ég átti leið um Hólmavík um miðjan ágúst í fyrra var Herja ST 166 að makrílveiðum við hafnarkjaftinn og að sjálfsögðu var myndavélin tekin upp.  Herja ST 166 var smíðuð hjá bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirðir árið 2011 og er af gerðinni Cleopatra 31. Eigandi er útgerðarfélagið … Halda áfram að lesa Herja ST 166

Arnarnes SI 70 á rækjuveiðum

1128. Arnarnes SI 70 ex Arnarnes ÍS 42. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér er togarinn Arnarnes SI 70 á toginu á rækjuslóð norðan við land 1988 eða 9. Albert GK 31 í fjarska. Arnarnes var þarna í eigu Sæmundar Árelíusarsonar en síðar Þormóðs Ramma hf. á Siglufirði. Togarinn hét upphaflega Rán GK 42 á íslenskri skipaskrá. Síðar … Halda áfram að lesa Arnarnes SI 70 á rækjuveiðum

Heimaey VE 1 kemur til hafnar með kolmunna

2812. Heimaey VE 1. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Heimaey VE 1 kom til hafnar í Vestmannaeyjum á sjöunda tímanum með kolmunnafarm. Hólmgeir Austfjörð tók þessar myndir sem hér birtast af skipinum en kolmunnaskipin hafa verið að veiðum vestur af syðsta odda Írlands undanförnu. Það er alþjóðlegt hafsvæði. 2812. Heimaey VE 1. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. … Halda áfram að lesa Heimaey VE 1 kemur til hafnar með kolmunna

Fjordvik tekið um borð í Rolldock Sea

Fjordvik á leið upp í Rolldocs Sea. 370. Þróttur heldur í. Ljósmynd Maggi Jóns 2019. Maggi Jóns tók þessar myndir í vikunni þegar sementsflutningaskipið Fjordvik, sem strandaði í Helguvík á Reykjanesi í nóvember, var komið fyrir í Rolldock Sea í Hafnarfjarðarhöfn. Fjordvik á leið upp í Rolldock Sea. Ljósmynd Maggi Jóns 2019. Rolldock Sea, sem … Halda áfram að lesa Fjordvik tekið um borð í Rolldock Sea

Bylgja VE 75 kemur til Vestmannaeyja

2025. Bylgja VE 75. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Bylgja VE 75 var smíðuð í Slippstöðinni á Akureyri fyrir Mattíhas Óskarsson útgerðarmann og skipstjóra árið 1992. Hún hefur alla tíð verið í eigu hans en fyrirtækið heitir Bylgja VE 75 ehf. Bylgja VE 75 er  33,74 m á lengd og  8,6 m á breidd. Hún mælist  277 … Halda áfram að lesa Bylgja VE 75 kemur til Vestmannaeyja

Kristján HF 100 kemur til Grindavíkur

2961. Kristján HF 100. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Línubáturinn Kristján HF 100 kom til Grindavíkur í fyrsta skipti í gærkveldi og að sjálfsögðu lá Jón Steinar fyrir honum. Útgerðarfélagið Kambur ehf. fékk Kristján HF 100 afhentan frá Trefjum í fyrrasumar. Hann hefur fiskað vel síðan veiðar hófust og landað hér og þar en eins og … Halda áfram að lesa Kristján HF 100 kemur til Grindavíkur

Hásteinn ÁR 8 kemur til Grindavíkur

1751. Hásteinn ÁR 8 ex Örn VE 244. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Hér er Hásteinn ÁR 8 frá Stokkseyri að koma inn til Grindavíkur um kvöldmatarleitið í kvöldJón Steinar tók myndina og sagði á B&B að það hefði veri mokfiskerí hjá þeim. Afli dagsins var um 30 tonn sem fengust í tveimur köstum rétt vestan … Halda áfram að lesa Hásteinn ÁR 8 kemur til Grindavíkur