Múlaberg við Eyjar

1281. Múlaberg SI 22 ex Múlaberg ÓF 32. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2020. Hólmgeir Austfjörð tók þessar myndir í dag af Múlabergi SI 22 þar sem það beið af sér brælu við Vestmannaeyjar. Múlaberg er í togararalli Hafró þessa dagana. 1281. Múlaberg SI 22 ex Múlaberg ÓF 32. Ljósmyndir Hólmgeir Austfjörð 2020. Með því að smella … Halda áfram að lesa Múlaberg við Eyjar →

Búi EA 100

1380. Búi EA 100 ex Fjalar ÍS 54. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Búi EA 100 hét upphaflega Fjarðará KE 23 og var smíðaður árð 1971 í Skipa­smíða­stöð Nóa Kristjáns­sonar á Akureyri. Á vef Árna Björns Árnasonar, aba.is segir: Smíðaður fyrir Sigurbjörn Sigurjónsson, Keflavík, sem átti bátinn í tvö ár. Samkvæmt ritinu "Íslensk skip" þá var báturinn dekkaður þriggja … Halda áfram að lesa Búi EA 100 →

Klakkur við bryggju á Húsavík

1472. Klakkur ÍS 903 ex Ísborg II ÍS 260. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Skuttogarinn Klakkur ÍS 903, sem stundar rækjuveiðar, liggur við Norðurgarðinn á Húsavík og var myndin tekin fyrir stundu. Tjaldtangi ehf. á Ísafirði er eigandi Klakks sem er með heimahöfn á Flateyri. Klakkur hét um stuttan tíma Ísborg II ÍS 260 en hét … Halda áfram að lesa Klakkur við bryggju á Húsavík →

Haförn að veiðum á Skjálfanda

1979. Haförn ÞH 26 ex Þorsteinn BA 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Haförn ÞH 26 frá Húsavík er hér að dragnótaveiðum á Skjálfandaflóa í dag. Uggi fiskverkun ehf. keypti bátinn til Húsavíkur haustið 2010 en hann hét áður Þorsteinn BA 1 frá Patreksfirði. Haförn ÞH 26 hét upphaflega Faxafell GK 110, því næst Blíðfari GK 275, Mundi SF … Halda áfram að lesa Haförn að veiðum á Skjálfanda →