Súlnafell ÞH 361

978. Súlnafell ÞH 361 ex Skjöldur SI 101. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Súlnafell ÞH 361 var gert út frá Þórshöfn árin 1987 til 1989 en það var Útgerðarfélag Norður-Þingeyinga hf. sem gerði það út.

Togarinn hét áður Skjöldur SI 101 og var endurbyggður á Siglufirði árið 1984.

Hér má sjá hvernig hann leit út fyrir þær breytingar.

Upphaflega hét hann Siglfirðingur SI 150 og var smíðaður var fyrir Siglfirðing hf. á Siglufirði árið 1964 í Ulsteinsvik í Noregi.

Siglfirðingur var tímamótaskip en hann var fyrsta íslenska togskipið með skutrennu.

Í Gömul íslensk skip segir:

Sm. í Noregi 1964. Stál. 274 brl. Vél 750 ha. Deutz. eig. Siglfirðingur h/f. Siglufirði, frá 20. júlí 1964. Skipið var endurmælt í jan. 1969 og mældist þá 203 brl.

Selt eftir 1970 Rafni Svanssyni og Ara Albertssyni, Breiðdalsvík. 1971 eru Gunnvör h/f, Hrönn h/f, og Íshúsfélag Ísfirðinga h/f, Ísafirði eig. Selt 12. okt. 1972 Sigurgeir Ólafssyni og Eiríki Ólafi Sigurgeirssyni, Vestmannaeyjum, skipið hét Lundi VE 110.

Selt 4. des. 1976 Bás h/f, Húsavík, skipið hét Bjarni Ásmundar ÞH 320. 1977 var sett í skipið 1000 ha. Brons vél. Selt 4. okt. 1978 Bás h/f, Reykjavík, skipið hét Bjarni Ásmundar RE 12. 1980 var nafni skipsins breytt, hét þá Fram RE 12, sömu eig. Selt 21. des. 1981 Rafni h/f, Sandgerði, skipið hét Sigurpáll GK 375.

Skipið var selt 14. apr. 1984 Ísafold h/f, Siglufirði, skipið hét Skjöldur SI 101. Selt 7. okt. 1987 Útgerðafélagi Norður Þingeyinga, Þórshöfn, Langanesi, skipið heitir Súlnafell ÞH 361. Selt til Hríseyjar 1989. 

Þegar til Hríseyjar var komið fékk Súlnafellið einkennisstafina EA og númerið 840.

Í ársbyrjun 1995 keypti Rif ehf. Súlnafellið sem fékk nafnið Svanur EA 14 og kom hann í stað Eyrúnar EA 155.

Svanur EA 14 var seldur utan í brotajárn árið 2006.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd