
Hér gefur að líta Hörpu GK 111 á toginu en það var Gullvík hf. í Grindavík sem gerði bátinn út.
Báturinn, sem var 67 brl. að stærð, hét upphaflega Höfrungur AKk 91 og var smíðaður árið 1955 hjá Þorgeir og Ellert hf. á Akranesi fyrir Harald Böðvarsson & Co. hf. á Akranesi.
Vorið 1976 var báturinn seldur Gullvík hf. í Grindavík þar sem hann fékk nafnið Harpa GK 111.
Þegar Gullvík hf. fær nýja Hörpu GK 111 sem smíðuð var á Seyðisfirði 1984 fékk sú gamla nafnið Harpa II GK 101. Hún var gerð út undir því nafni í nokkurn tíma en fór síðan í úreldingu árið 1986.
Báturinn hefur um langan tíma staðið í slippnum á Akranesi þar sem hann er vinsælt myndefni ljósmyndara. Þ.e.a.s það sem eftir er af honum.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.