Guðrún Þorkelsdóttir SU 211

2944. Guðrún Þorkelsdóttir SU 211 ex Qavak GR 2 1. Ljósmynd Þór Jónsson 2020. Þór Jónsson á Djúpavogi, skipverji á Ljósafelli SU 70, tók þessa mynd af Guðrúnu Þorkelsdóttur SU 211 á miðunum seint í ágústmánuði. Eskja hf. keypti skipið haustið 2017 en það hét áður Qavak GR 2 1 og var í eigu dótturfélags … Halda áfram að lesa Guðrún Þorkelsdóttir SU 211 →

Bervík SH 343

936. Bervík SH 343 ex Friðrik Bergmann SH 240. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Bervík SH 343, sem sést hér á mynd Tryggva Sigurðssonar, hét upphaflega Æskan SI 140 og var smíðuð 1963 hjá Raun Bybergs Skibsbyggeri as. í Odense í Danmörku fyrir Æskuna hf. á Siglufirði. Hún mældist í upphafi 82 brl. að stærð en var síðan … Halda áfram að lesa Bervík SH 343 →

Tveir nýir Cleopatra 31 til Noregs

Ea N-10-SO. Ljósmynd Trefjar 2020. Nú nýverið afgreiddi bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði tvo nýja Cleopatra báta til Nordlandsfylkis í Norður Noregi. Bátarnir, sem komnir eru til Noregs og heita Emmy og Ea, eru báðir af gerðinnni Cleopatra 31 en þeir eru 9.6 metrar að lengd og mælast 9 brúttótonn að stærð. Útgerðarmennirnir eru Trygve  Magnus … Halda áfram að lesa Tveir nýir Cleopatra 31 til Noregs →

Haförn kemur að landi eftir dragnótaróður

1979. Haförn ÞH 26 ex Þorsteinn BA 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Haförn ÞH 26 kom að landi á Húsavík síðdegis í dag en báturinn er gerður út af Ugga fiskverkun ehf. til dragnótaveiða Uggi fiskverkun ehf. keypti bátinn til Húsavíkur haustið 2010 en hann hét áður Þorsteinn BA 1 frá Patreksfirði. Haförn ÞH 26 hét upphaflega … Halda áfram að lesa Haförn kemur að landi eftir dragnótaróður →

Sigurður Ólafsson við bryggju á Höfn

173. Sigurður Ólafsson SF 44 ex Sigurður Sveinsson SH 36. Ljósmynd Sverrir Aðalsteinsson. Hann ber aldurinn vel hann Sigurður Ólafsson SF 44 sem hér liggur í blankalogni við bryggju á Höfn. Báturinn var smíðaður í Risör í Noregi árið 1960 fyrir Guðmund Runólfsson Grafarnesi, Guðmund Kristjánsson og Jón Kristjánsson í Eyrarsveit Snæfellssýslu og hét Runólfur SH 135. … Halda áfram að lesa Sigurður Ólafsson við bryggju á Höfn →

Bárður SH 81 kom til Dalvíkur

2965. Bárður SH 81. Ljósmynd Haukur Sigtryggur 2020. Bárður SH 81 kom til Dalvíkur nú í kvöld og tók Haukur Sigtryggur þessar myndir við það tækifæri. Bárður er á dragnót en eins og menn muna þá er hann stærsti trefjaplastbátur sem smíðaður hefur verið fyrir íslenska útgerð. Bárður SH 81 er 26,93 metra langur, breidd … Halda áfram að lesa Bárður SH 81 kom til Dalvíkur →