2617. Bergvík GK 22 ex Daðey GK 707. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Bergvík GK 22 sem GunGum ehf. gerir út er á grásleppunetum þessa dagana og hér er hún á siglingu til hafnar í Grindavík í gær. Bergvíkin var að koma í gær austan af Hraunsvíkinni eftir að hafa dregið grásleppunetin og lagði eina trossu … Halda áfram að lesa Bergvík GK 22
Month: apríl 2019
Nordanvik kom með sement til Helguvíkur
Nordanvik ex Tiger. Ljósmynd Elvar Jósefsson 2019. Sementsflutningaskipið Nordanvik kom til hafnar í Helguvík um hádegisbil í gær og tók Elvar Jósefsson þessar myndir þá. Það hefur verið að koma með sement frá Aalborg í Danmörku til sementsbyrgðarstöð Aalborg Portlands í Helguvík. Skipið var smíðað árið 2002 af Damen Shipyard í Galatí í Rúmeníu og … Halda áfram að lesa Nordanvik kom með sement til Helguvíkur
Börkur NK 122 í flotkví á Akureyri
2865. Börkur NK 122 ex Malene S. Ljósmynd Hilmar Örn Kárason 2019. Hilmar Örn Kárason tók þessar myndir af nóta- og togveiðiskipinu Berki NK 122 í flotkví Slippsins á Akureyri. Börkur NK 122 hét áður Malene S frá Noregi og var keyptur hingað til lands af Síldarvinnslunni hf. í febrúar árið 2014. Börkur var smíðaður í Tyrklandi … Halda áfram að lesa Börkur NK 122 í flotkví á Akureyri
Guðbjörg GK 77
2468. Guðbjörg GK 77 ex Guðbjörg GK 666. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Guðbjörg GK 77 sem áður var GK 666 kemur hér til hafnar í Grindavík í gær. Upphaflega hét báturinn, sem er í eigu Stakkavíkue ehf., Ársæll Sigurðsson HF 80 og var smíðaður í Kína árið 2001. Yfirbyggður i Póllandi 2005. Seldur Ingimundi hf. … Halda áfram að lesa Guðbjörg GK 77
Geysir BA 25
1608. Geysir BA 25 ex Lómur HF 177. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Geysir BA 25 siglir hér til hafnar á Húsavík um árið en hann var á rækjuveiðum undir stjórn Þórðar Birgissonar. Geysir hét upphaflega Baldur EA 108 á íslenskri skipaskrá en þegar hann var keyptur til Dalvíkur 1981 af Upsaströnd hf. hét hann Glen Urquhart … Halda áfram að lesa Geysir BA 25
Geirfugl GK 66 kom til Grindavíkur í gær
2500. Geirfugl GK 66 ex Oddur á Nesi ÓF 176. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Geirfugl GK 66 kom til heimahafnar í Grindavík í gær eftir að hafa róið fyrir norðan frá því Stakkavík eignaðist hann á dögunum. Eins og kom fram á síðunni fyrir skömmu höfðu Stakkavík ehf. og BG nes ehf. bátaskipti. Geirfugl GK … Halda áfram að lesa Geirfugl GK 66 kom til Grindavíkur í gær
Bára ÞH 7
1300. Bára ÞH 7. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Bára ÞH 7 er hér á útleið frá Húsavík áleiðis á grásleppumiðin vestur undan um miðjan níunda áratug síðustu aldar. Bára ÞH 7 var smíðuð af Herði Björnssyni á Borgarfirði eystra árið 1973 fyrir Jón B. Gunnarsson og Kristinn Lúðvíksson á Húsavík. Hún er smíðuð úr furu og … Halda áfram að lesa Bára ÞH 7
Victoriaborg á Húsavík
Victoraborg við Bökugarðinn. Ljósmynd Gaukur Hjartarsson 2019. Flutningaskipið Victoriaborg frá Hollandi kom upp að Bökugarðinum í gærmorgun eftir að Selfoss fór frá. Victoriaborg er með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka og hafði legið fyrir framan höfnina meðan Selfoss var losaður og lestaður. Victoriaborg, sem er með heimahöfn Delfzijl í Hollandi, var smíðað árið 2001 í … Halda áfram að lesa Victoriaborg á Húsavík
Drónamyndir af Indriða Kristins BA 751
2947. Indriði Kristins BA 751 á leið inn til Grindavíkur í dag. Ljósmynd Jón Steinar. Þrátt fyrir að vera búinn að birta myndir af Indriða Kristins BA 751 í tvígang á stuttum tíma er ekki hægt annað en að birta þessar sem Jón Steinar tók á drónann í dag. 2947. Indriði Kristins BA 751. Ljósmynd … Halda áfram að lesa Drónamyndir af Indriða Kristins BA 751
Sunnutindur SU 95
2670. Sunnutindur SU 95 ex Þórkatla GK 9. Ljósmynd Þór Jónsson. Sunnutindur er nafn sem lengi var í flota Djúpavogsbúa og einatt á fleytum í eigu Búlandstinds. Sá síðasti áður en kom að þessum sem hér birtist var að vísu í eigu Vísis hf. í Grindavík. Búlandstindur ehf. keypti Þórkötlu GK 9 af Stakkavík ehf. … Halda áfram að lesa Sunnutindur SU 95









