2893. Drangey SK 2 . Ljósmynd Guðmundur Rafn Guðmundsson 2019. Skuttogarinn Drangey SK 2 hefur fiskað vel að undanförnu og á þessum myndum Gunda er hún að veiðum fyrir Suðulandi fyrir nýliðna helgi. Drangey hefur landað að undanförnu í Grundarfirði þaðan sem aflanum er ekið til vinnslu hjá FISK Seafood á Sauðárkróki. 2893. Drangey SK … Halda áfram að lesa Drangey SK 2 að veiðum
Month: apríl 2019
Helgi SF 50 á Siglufirði
TFDV. Helgi SF 50. Ljósmynd Hannes Baldvinsson Siglufirði. Vélbáturinn Helgi SF 50 var smíðaður fyrir Hornfirðinga í Danmörku 1956 og var 56 brl. að stærð. Á þessari mynd Hannesar Baldvinssonar er hann að koma með síld til löndunar á Siglufirði. 15. september 1961 fórst Helgi SF 50 á Færeyjabanka og fórust þar sjö menn, en … Halda áfram að lesa Helgi SF 50 á Siglufirði
Öðlingur SU 19
2959. Öðlingur SU 19 ex Tranøy T-115-T. Ljósmynd Þór Jónsson. Öðlingur SU 19 er er af gerðinni Cleopatra 36B og hét upphaflega Tranøy T-115-T frá Tromsø. Smíðaður fyrir útgerðarfélagið West Atlantic AS og afhentur í janúar árið 2016. Eyfreyjunes ehf. á Djúpavogi keypti Tranøy til landsins haustið 2017 og leysti hann af hólmi minni bát … Halda áfram að lesa Öðlingur SU 19
Sti Poplar í Helguvík
Olíuskipið Sti Poplar í Helguvík. Ljósmyn Elvar Jósefsson 2019. Hér birtast myndir sem Elvar Jósefsson sendi síðunni af olíuskipinu Sti Poplar sem kom til Helguvíkur fyrir skömmu með flugvélaeldsneyti. Skipið losaði um 40 milljónir lítra í olíubirgðarstöðina í Helguvík, það kom aðfaranótt föstdagsins 22. mars og fór að morgni laugardags 23. mars. STI Poplar. Ljósmynd … Halda áfram að lesa Sti Poplar í Helguvík
Hitti fyrir gamlan kunningja norðarlega í Smugunni
ESKS. Steffano EK 16-01 ex Steffen C GR 6-22. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2019. Alltaf gaman að fá gamla "kunningja" í heimsókn segir Eiríkur Sigurðsson skipstjóri á rækjutogaranum Reval Viking við mynd sína í Fésbókarfærslu hans í dag. Myndin er af rækjutogaranum Steffano sem er í eigu sama fyrirtækis og Reval Viking, Reyktal AS en þeir … Halda áfram að lesa Hitti fyrir gamlan kunningja norðarlega í Smugunni
Hafbjörg EA 23
62. Hafbjörg EA 23 ex Jón Bjarnason SF 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér siglir Hafbjörg EA 23 frá Hauganes eftir að hafa verið skveruð í Slippstöðinni á Akureyri. Hafbjörg EA 23 hét upphaflega Gísli lóðs GK 130 og var smíðaður fyrir Jón Gíslason útgerðarmann í Hafnarfirði árið 1961. Í Morgunblaðinu 1. desember 1961 sagði svo … Halda áfram að lesa Hafbjörg EA 23
Vigur SF 80
2880. Vigur SF 80. Ljósmynd Þór Jónsson. Vigur SF 80 er bátur sem ég held að hafi ekki birst fyrr á þeim skipamyndasíðum sem ég hef haldið úti en hér kemur hann. Það var Þór Jónsson á Djúpavogi sem tók þessar myndir og ljáði mér afnot af þeim. Við eigum eftir að njóta fleiri mynda … Halda áfram að lesa Vigur SF 80
Viðey RE 50 á toginu
Viðey RE 50. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Viðey RE 50 er hér að veiðum á miðunum sunnan við land um helgina en hún er eins og kunnugt er eitt þriggja systurskipa sem HB Grandi lét smíða í Tyrklandi. Viðey RE 50 leysti Ottó N Þorláksson RE 203 af hólmi og svo skemmtilega vill til að … Halda áfram að lesa Viðey RE 50 á toginu







