Steinunn SH 167

1134. Steinunn SH 167 ex Ingibjörg RE 10. Ljósmynd Alfons Finnsson. Dragnótabáturinn Steinunn SH 167 kemur hér að landi í Ólafsvík, myndina tók Alfons vinur minn. Steinunn hét upphaflega Arnfirðingur II GK 412 og var smíðaður í Stálvík í Garðabæ 1970. Eigandi Arnfirðings II frá því í ársbyrjun 1971 var Arnarvík hf. í Grindavík . Þegar … Halda áfram að lesa Steinunn SH 167 →

Ólafur Bjarnason SH 137

1304. Ólafur Bjarnason SH 137. Ljósmynd Alfons Finnsson. Ólafur Bjarnason SH 137 var smíðaður hjá Þorgeir & Ellert hf. á Akranesi árið 1973. Það var Valafell hf. í Ólafsvík sem lét smíða bátinn og hefur átt hann og gert út alla tíð. Báturinn var skutlengdur um árið og þá hefur verið byggt yfir hann og … Halda áfram að lesa Ólafur Bjarnason SH 137 →

Þórsnes SH 109

2936. Þórsnes SH 109 ex Veidar 1. Ljósmynd Óskar Franz 2017. Þórsnes SH 109 kom til heimahafnar í Stykkishólmi í júnímánuði 2017 en það var keypt notað frá Noregi. Þórsnesið er 880 brúttótonna línu- og netaskip. 43,3 metrar á lengd og 10,5 metrar á breidd. Skipið var smíðað árið 1996 og er því mun yngra en gamla Þórsnesið … Halda áfram að lesa Þórsnes SH 109 →

Sandfell með tæp 50 tonn milli jóla og nýars

2841. Sandfell SU 75 ex Óli á Stað GK 99. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Þeir sóttu fast á Sandfellinu SU 75 á milli jóla og nýárs en farið var í fjóra róðra sem gáfu 47,5 tonn. Heildarafli bátsins í desember varð með þessu 186 tonn. Á heimasíðu Loðnuvinnslunnar segir einnig að Ljósafell SU 70 hafi … Halda áfram að lesa Sandfell með tæp 50 tonn milli jóla og nýars →

Tjaldur II ÞH 294

1109. Tjaldur II ÞH 294 ex Ásborg BA 84. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Tjaldur II ÞH 294 hét upphaflega Neisti RE 58 og var smíðaður á Fáskrúðsfirði 1970. Seldur í árslok sama ár til Bolungarvíkur en báturinn heitir áfram Neisti en verður ÍS 218.  Hann var í Bolungarvík fram yfir aldarmót en báturinn var seldur árið … Halda áfram að lesa Tjaldur II ÞH 294 →