Garpur dregur grásleppunetin á Hraunsvíkinni

2018. Garpur RE 148 ex Garpur SH 95. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2020. Jón Steinar tók þessar myndir í dag af grásleppubátnum Garpi RE 148 draga netin á Hraunsvíkinni austan Grindavíkur. Garpur var smíðaður árið 1989 á Seyðisfirði og hét upphaflega Litlanes ÞH 52, eigandi Óli Þorsteinsson á Þórshöfn. Litlanes ÞH 52 var selt til Fáskrúðsfjarðar … Halda áfram að lesa Garpur dregur grásleppunetin á Hraunsvíkinni

Kristín lagði í´ann í gærkveldi

972. Kristín GK 457 ex Kristín ÞH 157. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2020. Línubáturinn Kristín GK 457 lagði upp í róður frá Grindavík í gær og myndaði Jón Steinar hana í kvöldsólinni. Kristín, sem upphaflega hét Þorsteinn RE 303, er annar tveggja báta sem enn eru gerðir út af þeim átján sem smíðaðir voru fyrir … Halda áfram að lesa Kristín lagði í´ann í gærkveldi

Heiðrún GK 505

1506. Heiðrún GK 505 ex Heiðrún ÍS 4. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Heiðrún GK 505 lætur hér úr höfn á Húsavík áleiðis á rækjumiðin út af Norðurlandi. Heiðrún, sem var 294 brl. að stærð, var smíðuð árið 1978 í Skipasmíðastöð Marselíusar Bernharðssonar h/f á Ísafirði fyrir Völustein h/f í Bolungarvík. Togarinn var búinn 1450 hestafla Alpha … Halda áfram að lesa Heiðrún GK 505

Mir landaði á Húsavík í febrúar 1999

IMO 7827732. Mir ex Már SH 127. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1999. Rússneski togarinn Mir landaði hjá GPG á Húsavík í febrúarmánuði 1999 og þá hef ég tekið þessa mynd sem ég man þó ekkert eftir að hafa tekið. En það eru einnig fjölskyldumyndir á sömu filmu og get ég sennilega ekki svarið myndatökuna af mér. … Halda áfram að lesa Mir landaði á Húsavík í febrúar 1999

Vestmannaey VE 54

2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2020. Hólmgeir Austfjörð í Vestmannaeyjum tók þessar myndir af Vestmannaey VE 54 á sjöunda tímanum í kvöld. Kallarnir voru að klára aðgerð áður en siglt var að bryggju í Eyjum og óhætt að segja að hún hafi verið falleg birtan þegar myndirnar voru teknar. 2954. Vestmannaey VE 54. … Halda áfram að lesa Vestmannaey VE 54

Albert GK 31 í innsiglingunni til Grindavíkur

1046. Albert GK 31 ex Birtingur NK 119. Ljósmynd Gunnar Hallgrímsson. Loðnuskipið Albert GK 31 er hér í innsiglingunni til Grindavíkur en einnig má sjá Gjafar VE 300 þar sem hann liggur á strandstað við Hópsnes. Báturinn hét upphaflega Birtingur NK 119 og smíðaður í Flekkefjord Slipp & Maskinfabrik Verksted A/S í Flekkefjord í Noregi árið 1967 … Halda áfram að lesa Albert GK 31 í innsiglingunni til Grindavíkur