Viðar ÞH 17

1354. Viðar ÞH 17 ex Guðbjörg Ósk SH 251. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Viðar ÞH 17 hét upphaflega Múli ÓF 5 frá Ólafsfirði og var smíðaður hjá Bátaverkstæði Gunnlauga og Trausta  á Akureyri árið 1974.

Hólmsteinn Helgason ehf. keypti bátinn, sem þá hét Guðbjörg Ósk SH 251, til Raufarhafnar árið 2001 og gerði hann út um fimm ára skeið.

Báturinn er í eigu Norðursiglingar á Húsavík í dag en honum var breytt í skonnortu árið 2010 og ber nafnið Hildur.

Báturinn hefur borið eftirfarandi nöfn: Múli ÓF 5, Fiskanes NS 37, Faxavík GK 727, Faxavík GK 737, Harpa II GK 101, Skálavík SH 208, Guðbjörg Ósk VE 151, Guðbjörg Ósk SH 251, Viðar ÞH 17, Héðinn Magnússon ÞH 17, Héðinn Magnússon HF 28, Héðinn HF 28 og Hildur.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd