
Ingibjörg SH 112 sem Breiðavík ehf. í Ólafsvík keypti frá Noregi fyrir skömmu kom til landsins í gærkveldi og tók Jón Steinar þessar myndir þar sem báturinn var á siglingu undan Hólmsbergi á leið sinni til Njarðvíkur.
Svo skrifar Jón Steinar á síðu sinni Báta – og bryggjubrölt:
Hér er nýjasta fleytan í íslenska flotanum Ingibjörg SH 112 á siglingu úti fyrir Hólmsbergi á leið sinni inn til Njarðvíkur í kvöld.
Báturinn er hingað kominn frá Ballstad í Noregi hvaðan hann var keyptur.
Ingibjörg er smíðuð árið 2014 hjá Skogdøy Båt AS og afhent 17. september sama ár til útgerðarinnar Mot Berlevåg AS í Berlevåg í Finnmörku og hét hún upphaflega Anne G.
Báturinn er svo seldur til Ballstad í Lofoten hvar hann fær nafnið Laurits H sem hann bar áður en til sölunnar til Íslands kom.
Ingibjörg er 14,96 metrar á lengd, 6,35 metrar á breiddina og 45,58 brúttótonn.
Skipið er hannað fyrir snurvoð, línu og nót.
Eigandi Ingibjargar er Breiðavík ehf og heimahöfnin er Ólafsvík.






Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution