Margrét ÍS 151

6946. Margrét ÍS 151 ex Björg B SH 105. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026.

Strandveiðibáturinn Margrét ÍS 151 kemur hér til hafnar á Suðureyri í sumar en hann er skráður með heimahöfn á Þingeyri.

Upphaflega hét báturinn Vinur ÍS 89 og var smíðaður árið 1987 hjá Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði.

Árið 1990 var Vinur skráður RE 305 en ári síðar fékk hann nafnið Ýmir BA 213 með heimahöfn á Brjánslæk og þar var báturinn til ársins 2008.

Þá lá leiðin aftur til Reykjavíkur og Ýmir varð RE 577. Árið 2012 fékk báturinn nafnið Björg B SH 105 með heimahöfn á Grundarfirði en frá árinu 2016 hefur hann borið nafnið Margrét ÍS 151.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd