
Hér gefur að líta skuttogarann Sóley Sigurjóns GK 200 á toginu en það Nesfiskur sem gerir hann út.
Sóley Sigurjóns GK 200 var smíðuð árið 1987 af J.K Skibsbyggeri APS í Danmörku fyrir Grænlendinga og hét Quaasiut II.
Togarinn hét upphaflega Júlíus Havsteen ÞH 1 á íslenskri skipaskrá en er í dag í eigu Nesfisks ehf. í Garðinum. Hann var fyrstu árin hér gerður út á rækju og fryst um borð en lengst af hefur hann verið ísfisktogari.
Hann hefur einnig borið nöfnin Rauðinúpur ÞH 160, Sólbakur EA 7 og Sólbakur RE 207.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.