
Þrymur BA 7 hét upphaflega Mestre Manuel Casqueira og var smíðaður í Portúgal árið 1984 en keyptur hingað til lands árið 1986.
Það var Hraðfrystihús Patreksfjarðar hf. sem keypti Þrym, sem var 253 brl. að stærð, og kom hann í stað eldri báts með sama nafni.
Þrymur fékk síðar nöfnin Látravík BA 66, Guðmundur Péturs ÍS 45, Guðmundur Péturs RE 42 og að lokum Kópanes RE 270.
Kópanes var selt til Spánar árið 2003.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution