2799. Daðey GK 777 ex Örninn ÓF 176. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Línubáturinn Daðey GK 777 sést hér koma til hafnar í Grindavík með í gærkvöldi. Aflinn 10 tonn sem fékkst á 11 rekka. Daðey GK 777, sem gerð er út af Vísi hf., hét upphaflega Oddur á Nesi SI 76. Smíðaður á Siglufirði 2010 fyrir … Halda áfram að lesa Daðey GK 777
Month: mars 2020
Gyllir ÍS 261
1640. Gyllir ÍS 261 ex Valur SU 68. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Línubáturinn Gyllir ÍS 261 liggur hér við bryggju í Þorlákshöfn fyrir margt löngu en upphaflega hét hann Patrekur BA 64. Patrekur BA 64 var afhentur frá Skipavík h/f í Stykkishólmi í nóvembermánuði 1982 og í 1. tbl. Ægis 1983 sagði m.a svo frá: 4. … Halda áfram að lesa Gyllir ÍS 261
Aðalbjörg II RE 236
1414. Aðalbjörg II RE 236 ex Vinur EA 80. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Aðalbjörg II RE 236 kemur að bryggju í Reykjavíkurhöfn á níunda áratug síðustu aldar. Einhverra hluta vegna á ég ekki margar brúklegar myndir af þessum bát undir þessu nafni en upphaflega hét hann Vöttur SU 3. Báturinn var smíðaður í Bátasmiðjunni Vör hf. … Halda áfram að lesa Aðalbjörg II RE 236
Eldhamar GK 13
1000. Eldhamar GK 13 ex Kristján RE 110. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Netabáturinn Eldhamar GK 13, í eigu samnefnds útgerðarfélags, kemur hér að landi í Grindavík um árið en hvaða ár er spurning. Eldhamar GK 13 hét upphaflega Seley SU 10 frá Eskifirði og var smíðaður í Flekkefjord í Noregi árið 1966. Hér má lesa örlítið … Halda áfram að lesa Eldhamar GK 13
Vörður ÞH 44 kom til Grindavíkur í morgun
2962. Vörður ÞH 44. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Togskipið Vörður ÞH 44 kom til hafnar í Grindavík í morgun með um 70 tonna afla en hann fór út kl. 16 sl. föstudag. Góð veiði greinilega. Jón Steinar var á ferðinni með myndavélina eins og oft áður og tók þessar myndir sem birtast nú. 2962. Vörður … Halda áfram að lesa Vörður ÞH 44 kom til Grindavíkur í morgun
Þórður Jónasson EA 350 kemur að landi í Krossanesi
264. Þórður Jónasson EA 350 ex Þórður Jónasson RE 350. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þessar myndir sem hér birtast voru teknar um árið og sýna loðnuskipið Þórð Jónasson EA 350 koma drekkhlaðið að bryggju í Krossanesi við Eyjafjörð. Þórður Jónasson EA 350, sem í dag ber nafnið Hörður Björnsson ÞH 260 og er gert út á … Halda áfram að lesa Þórður Jónasson EA 350 kemur að landi í Krossanesi





