Húsavíkurhöfn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér koma nokkrar myndir sem ég vissi ekki að ég ætti til. Hef verið að skanna filmur og þessar dúkkuðu upp í svart-hvíta dótinu. Þetta eru myndir sem ég tel að teknar hafi verið vorið 1992 og greinilega bræla úti fyrir. Nokkuð um aðkomubáta að sjá. Súlan EA 300 og ÖrnKE … Halda áfram að lesa Húsavíkurhöfn snemma á tíunda áratugnum
Day: 29. mars, 2020
Ottó N kom með fullfermi að landi í dag
1578. Ottó N Þorláksson VE ex RE 203. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2020. Ísfisktogarinn Ottó N Þorláksson VE 5 kom með fullfermi til heimahafnar í Vestmannaeyjum nú um miðjan daginn. Hólmgeir Austfjörð var í frítúr og fór á Klaka sínum til móts við félagana og tók þessa myndasyrpu sem nú birtist. 1578. Ottó N Þorláksson VE … Halda áfram að lesa Ottó N kom með fullfermi að landi í dag
Skálafell ÁR 50
100. Skálafell ÁR 50 ex Haförn SK 17. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2002. Skálafell ÁR 50, sem hér sést koma til hafnar í Reykjavík, fór í brotjárn árið 2014 en það var smíðað árið 1959. Smíðin fór fram í Noregi en báturinn var smíðaður fyrir Fáskrúðsfirðinga og fékk hann nafnið Hoffell SU 80. Síðar hét hann … Halda áfram að lesa Skálafell ÁR 50
Bjarki ÞH 271
5525. Bjarki ÞH 271 ex Sæfari ÞH 271. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér kemur Bjarki ÞH 271 að landi undir stjórna Helga Héðinssonar, sumarið 2000 er tíminn. Bjarki ÞH 271 var smíðaður árið 1962 í bátastöðinni Bárunni í Hafnarfirði. Héðinn Maríusson faðir Helga lét smíða hann fyrir sig og nefndi Sæfara ÞH 271. Sæfari var fjögur … Halda áfram að lesa Bjarki ÞH 271
Polonus GDY 58 að rækjuveiðum í Smugunni
IMO 9048902. Polonus GDY 58 ex Baldvin, Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2020. Frystitogarinn Polonus GDY 58 er hér að Rækjuveiðum í Smugunni fyrr í þessari viku en myndina tók Eiríkur Sigurðsson. Polonus þekkjum við sem Samherjatogarann Baldvin Þorsteinsson EA 10 og síðar Baldvin NC frá Cuxhaven. Skipið hvarf úr flota Samherja árið 2017 og á heimasíðu … Halda áfram að lesa Polonus GDY 58 að rækjuveiðum í Smugunni
Óli á Stað á landleið í gær
2842. Óli á Stað GK 99. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Jón Steinar sendi drónann til móts við Óla á Stað GK 99 þegar hann kom að landi í Grindavík í gær. Aflinn var fjórtán tonn en það er Stakkavík ehf. sem gerir bátinn út til línuveiða. Óli á Stað GK 99 var smíðaður á Akureyri, í … Halda áfram að lesa Óli á Stað á landleið í gær





