1084. Friðrik Sigurðsson ÁR 17 ex Jóhann Friðrik ÁR 17. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Hér koma myndir af Friðrik Sigurðssyni ÁR 17 sem smíðaður var í Stálvík árið 1969 fyrir Hofsósbúa. 1084. Friðrik Sigurðsson ÁR 17 ex Jóhann Friðrik ÁR 17. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Báturinn hét upphaflega Halldór Sigurðsson SK 3 og svo sagði frá í … Halda áfram að lesa Friðrik Sigurðsson ÁR 17
Month: apríl 2019
Barcelona Express
Barcelona Express við komuna til Malaga í dag. Barcelona Express kom til hafnar í Malaga í dag og smellti ég myndum af því við það tækifæri. Þetta skip, sem siglir undir fána Hong Kong, var smíðað hjá Hanjin Subic Shipyard í Olongapo á Filippseyjum árið 2014. Það er 227 metra langt, 37 metrar að breidd … Halda áfram að lesa Barcelona Express
Hrafn GK í haugasjó
1401. Hrafn GK 111 ex Ágúst GK 95. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Hrafn GK 111 kom til hafnar í Grindavík um kvöldmatarleytið í gær en haugasjór var og ölduhæðin 6,2 metrar. 1401. Hrafn GK 111 ex Ágúst GK 95. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Hrafn GK 111 hét upphaflega Gullberg VE 292 og var smíðaður hjá … Halda áfram að lesa Hrafn GK í haugasjó
Valdimar GK 195 í ólgusjó
2354. Valdimar GK 95 ex Vesturborg GK 195. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Línuskipið Valdimar Gk 195 kom til hafnar í Grindavík í dag um hádegisbil en það var suðaustan 12 metrar og haugasjór í honum með ölduhæð uppá 6,6m. þegar þetta var. Jón Steinar var á sínum stað og tók meðfylgjandi myndir en hann var … Halda áfram að lesa Valdimar GK 195 í ólgusjó
Sigurður Jónsson SU 150 við bryggju á Breiðdalsvík
182. Sigurður Jónsson SU 150. Ljósmynd Sigurður Þorleifsson frá Karlsstöðum í Berufirði. Hér kemur mynd sem Sigurður Þorleifsson frá Karlsstöðum í Berufirði tók á síldarárunum af Sigurði Jónssyni SU 150 velhlöðnum við bryggju á Breiðdalsvík. Sigurður Jónsson SU 150 var smíðaður í Noregi 1963 og kom til heimahafnar í nóvember það ár. Þann 13 nóvember … Halda áfram að lesa Sigurður Jónsson SU 150 við bryggju á Breiðdalsvík
Key West í Grindavík
Key West við Miðgarðinn í Grindavíkurhöfn. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Flutningaskipið Key West kom til Grindavíkur fyrir helgi með iðnaðarlýsi fyrir Lýsi hf. en lýsið er geymt í tönkum þeim sem sem áður tilheyrðu Fiskimjöli & Lýsi hf sem eyðilagðist í bruna árið 2005. Key West var smíðað árið 1992 og hét upphaflega Roland Essberger. … Halda áfram að lesa Key West í Grindavík
Pálína Ágútsdóttir EA 85 í roki og rigningu
1674. Pálína Ágústsdóttir EA 85 ex Sóley SH 124. Ljósmynd Elvar Jósefsson 2019. Togbáturinn Pálína Ágústdóttir EA 85 kom til hafnar í Keflavík í dag en báturinn er á fiskistrolli. Það var rok og rigning en það hamlaði ekki því að Elvar Jósefsson fór og myndaði bátinn við komuna. 1674. Pálína Ágústsdóttir EA 85 ex … Halda áfram að lesa Pálína Ágútsdóttir EA 85 í roki og rigningu
Ásgeir RE 60
1505. Ásgeir RE 60. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Grandatogarinn Ásgeir RE 60 leggur hér úr höfn í Reykjavík áleiðis á miðin. Ásgeir RE 60 var smíðaður fyrir Ísbjörninn hf. í Flekkefjørd í Noregi árið 1977, kom til heimahafnar 22. desember. Systurskip hans Ásbjörn RE 50 kom síðan 28. mars 1978. Ásgeir og Ásbjörn mældust 442 brl. … Halda áfram að lesa Ásgeir RE 60
Slippurinn fullklárar vinnsludekk Kaldbaks og Björgúlfs
2891.Kaldbakur EA 1 og 2982. Björgúlfur EA 312 á veiðum í síðustu viku. Ljósmynd Guðmundur Rafn 2019. Fiskifréttrir greina frá því í nýjasta tölublaði sínu að samningar hafi verið undirritaðir milli Samherja og Slippsins Akureyri um ný vinnsludekk í ísfisktogaranna Kaldbak EA 1 og Björgúlf EA 312. Áætlað að Slippurinn klári uppsetningu á vinnsludekkinu í … Halda áfram að lesa Slippurinn fullklárar vinnsludekk Kaldbaks og Björgúlfs
Wilson Calais kom til Húsavíkur með áburð
Wilson Calais ex Steffen Sibum. Ljósmynd Gaukur Hjartarson 2019. Flutningaskipið Wilson Calais kom til Húsvíkur í gærkveldi þar sem það mum losa áburð handa þingeyskum bændum á Norðurgarðinum. Skipið er 100 metra langt og 13 metra breitt, mælist 2,994 GT að stærð. Það var smíðað árið 2001 og siglir undir fána Barbadoseyja, heimahöfnin Bridgetown. Með … Halda áfram að lesa Wilson Calais kom til Húsavíkur með áburð









