2468. Guðbjörg GK 77 ex Guðbjörg GK 666. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Guðbjörg GK 77 sem áður var GK 666 kemur hér til hafnar í Grindavík í gær. Upphaflega hét báturinn, sem er í eigu Stakkavíkue ehf., Ársæll Sigurðsson HF 80 og var smíðaður í Kína árið 2001. Yfirbyggður i Póllandi 2005. Seldur Ingimundi hf. … Halda áfram að lesa Guðbjörg GK 77
Day: 6. apríl, 2019
Geysir BA 25
1608. Geysir BA 25 ex Lómur HF 177. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Geysir BA 25 siglir hér til hafnar á Húsavík um árið en hann var á rækjuveiðum undir stjórn Þórðar Birgissonar. Geysir hét upphaflega Baldur EA 108 á íslenskri skipaskrá en þegar hann var keyptur til Dalvíkur 1981 af Upsaströnd hf. hét hann Glen Urquhart … Halda áfram að lesa Geysir BA 25
Geirfugl GK 66 kom til Grindavíkur í gær
2500. Geirfugl GK 66 ex Oddur á Nesi ÓF 176. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Geirfugl GK 66 kom til heimahafnar í Grindavík í gær eftir að hafa róið fyrir norðan frá því Stakkavík eignaðist hann á dögunum. Eins og kom fram á síðunni fyrir skömmu höfðu Stakkavík ehf. og BG nes ehf. bátaskipti. Geirfugl GK … Halda áfram að lesa Geirfugl GK 66 kom til Grindavíkur í gær
Bára ÞH 7
1300. Bára ÞH 7. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Bára ÞH 7 er hér á útleið frá Húsavík áleiðis á grásleppumiðin vestur undan um miðjan níunda áratug síðustu aldar. Bára ÞH 7 var smíðuð af Herði Björnssyni á Borgarfirði eystra árið 1973 fyrir Jón B. Gunnarsson og Kristinn Lúðvíksson á Húsavík. Hún er smíðuð úr furu og … Halda áfram að lesa Bára ÞH 7
Victoriaborg á Húsavík
Victoraborg við Bökugarðinn. Ljósmynd Gaukur Hjartarsson 2019. Flutningaskipið Victoriaborg frá Hollandi kom upp að Bökugarðinum í gærmorgun eftir að Selfoss fór frá. Victoriaborg er með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka og hafði legið fyrir framan höfnina meðan Selfoss var losaður og lestaður. Victoriaborg, sem er með heimahöfn Delfzijl í Hollandi, var smíðað árið 2001 í … Halda áfram að lesa Victoriaborg á Húsavík




